Kvóti Ögurvíkur metinn á 14,5 milljarða króna

Hlut­hafa­fundur hefur verið boð­aður hjá HB Granda 16. októ­ber til að ræða kaup félags­ins á Ögurvík af Brimi, félags­ins sem for­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, á að stærstum hluta.

Afla­heim­ildir Ögur­víkur, sam­tals 7.680 tonn í botn­fisk­teg­undum og 1.663 tonn í mak­ríl, eða sem nemur um 1,3 pró­sent af heild­inni, eru metnar á 14,5 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í kynn­ingu á Ögurvík sem birt var á vef kaup­hallar Íslands í dag. HB Grandi er eina útgerð­ar­fyr­ir­tækið á Íslandi sem skráð er á markað, en mark­aðsvirði þess nemur nú 57,4 millj­örðum króna.

Brim hf., nú Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, er stærsti eig­andi HB Granda með ríf­lega þriðj­ungs­hlut, en það félag er jafn­framt selj­andi Ögur­víkur. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, er stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur. Félagið seldi á dög­unum þriðj­ungs­hlut sinn í Vinnslu­stöð­inni fyrir 9,4 millj­arða króna til FISK Seafood, útgerð­ar­hluta Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

Stjórn HB Granda hefur þegar sam­þykkt kaup félags­ins á Ögurvík, fyrir 12,3 millj­arða króna. Við­skiptin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og einni háð sam­þykki hlut­hafa­fundar.

Kaupin verða fjár­mögnuð með eigin fé og láns­fjár­magni, núver­andi vaxta­kjör sam­banka­láns eru EURIBOR + 1,95%, að því er fram kemur í kynn­ing­unni á Ögurvík. Við­mið­un­ar­gengið í við­skipt­unum er 124,9 krónur fyrir evr­una, en evran kostar nú 129 krónur.

Ögurvík gerir út togar­ann Vigra RE en virði skips­ins sam­kvæmt verð­mat­inu er 1,7 millj­arður króna.

Eigið fé HB Granda nam um 250,5 millj­ónum evra um mitt þetta ár, eða sem nemur um 32 millj­örðum króna.

Stærstu eig­endur HB Granda, fyrir utan Brim hf., nú Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Næst stærsti eig­andi félags­ins er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna með 13,6 pró­sent hlut. Virði félags­ins hefur dreg­ist saman um 7,7 pró­sent á und­an­förnum 12 mán­uðum á mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár