Álagningu veiðigjalda breytt - Afkomutengingin færð nær í tíma

Tölu­verðar breyt­ingar verða gerðar á því hvernig veiði­gjöld í sjáv­ar­út­vegi verði inn­heimt, sam­kvæmt frum­varpi til laga þar um.

Kristján Þór Júlíusson kynnir nýtt frumvarp á blaðamannafundi í dag.
Kristján Þór Júl­í­us­son kynnir nýtt frum­varp á blaða­manna­fundi í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt nýfram­lögðu frum­varpi til laga um breyt­ingar á veiði­gjöldum í sjáv­ar­út­vegi er lagt upp með að afkomu­teng­ingin í gjald­heimt­unni verði færð nær í tíma heldur en nú er.

Þannig verða rekstr­ar­gögnin sem liggja til grund­vallar gjald­heimt­unni eins árs gömul í stað tveggja ára eins og verið hefur und­an­farin ár.

Með þessu er stefnt að því að gjald­heimtan verði skyn­sam­legri bæði fyrir atvinnu­veg­inn sem heild, sem og stjórn­völd og almenn­ing. Með fyrr­nefndum breyt­ingum verður gjald­heimtan tengd­ari því sveiflu­kennda umhverfi sem oft ein­kennir íslenskt efna­hags­líf.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í frum­varpi sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur lagt fram á þingi, og nú er verið að kynna á blaða­manna­fundi.

Ein breyt­ingin sem gerð verður felst í því að afleggja veiði­gjalda­nefnd og færa gjald­heimt­una til Rík­is­skatt­stjóra, sem mun sjá um útreikn­ing á veiði­gjöld­unum. Sú breyt­ing á að skila sér í sterk­ari stjórn­sýslu í kringum inn­heimt­una og áreið­an­legri gögnum en gögn frá Hagstofu Íslands, aftur í tím­ann, hafa veitt sem grunn að útreikn­ing veiði­gjalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár