Vaðlaheiðargöng opna fyrir umferð 1. desember

Mikill jarð­hiti gerði verk­taka lífið leitt og vatns­elgur sömu­leiðis. Upp­haf­lega átti að afhenda göngin 2016, en nú sér loks fyrir end­ann á Vaðla­heið­ar­göngum.

Stefnt er að því að Vaðla­heið­ar­göng verði tekin í notkun 1. des­em­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá Vaðla­heið­ar­göngum hf. og verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Ósafli sf., sem stefnir að því að afhenda göngin til­búin til umferðar föstu­dag­inn 30. nóv­em­ber.

Upp­haf­legar áætl­arnir gerðu ráð fyrir því að göngin yrðu til­búin árið 2016 en erf­ið­leikar við fram­kvæmdir, meðal ann­ars vegna jarð­hita og vatns­elg, hafa tafið fram­vindu.

Heild­ar­kostn­aður er nú áætl­aður 16 til 17 millj­arðar króna.

Sam­komu­lag um upp­gjör og greiðslu bóta til Ósafls sam­kvæmt úrskurði sátta­nefndar sem starfar sam­kvæmt ákvæðum verk­samn­ings, hefur einnig náðst. „Bæturnar eiga sér einkum rót í áhrifum af umfangs­meiri jarð­hita á ganga­leið­inni en vænst var og námu á verð­lagi samn­ings­ins kr. 1.379 millj­ónum. Verk­kaupi gerir ágrein­ing um bóta­fjár­hæð­ina og hefur í sam­ræmi við reglur verk­samn­ings­ins áskilið sér rétt til að fara með hann fyrir dóm­stóla,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Einar Hrafn Hjálm­ars­son, verk­efn­is­stjóri Ósafls, sagði í til­kynn­ing­unni að ganga­gerðin hafi verið erfið áskorun og tekið á starfs­menn vegna óvenju erf­iðra jarð­fræði­legra aðstæðna. Jarð­hit­inn hafi verið miklu meiri og útbreidd­ari en vænst hafi verið. „Við munum nú ein­henda okkur í loka­vinn­una, kalla til fleiri starfs­menn og setja fleiri á vaktir til þess að ná því marki að skila göng­unum til­búnum til umferðar 30. nóv­em­ber næst­kom­andi.“

Í yfir­lýs­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu segir að það sé fagn­að­ar­efni að þessu umfangs­mikla verk­efni sé nú að ljúka. „Á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag upp­lýsti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra rík­is­stjórn­ina um stöðu máls­ins, þ.e. að verk­taki og verk­kaupi hafi kynnt samn­ing um hvernig ljúka megi göng­unum og opna fyrir umferð 1. des­em­ber. Samn­ing­ur­inn var með fyr­ir­vara um stað­fest­ingu rík­is­sjóðs, sem lán­veit­anda, og hlut­hafa Vaðla­heið­ar­ganga en ráð­herra upp­lýsti rík­is­stjórn um skil­yrði rík­is­sjóðs fyrir sam­þykkt samn­ings­ins. Skil­yrðin snúa að því hvernig verk­kaupi geti dregið á lán til greiðslu verk­taka þannig að hags­munir allra aðila, að því að ljúka verk­inu sem fyrst, fari saman. Það er fagn­að­ar­efni fyrir rík­is­sjóð að sjá fram á lok verks­ins og að hægt verði innan fárra mán­aða að hleypa umferð um göngin, almenn­ingi til heilla,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár