10 staðreyndir um Dansk Folkeparti

Danski þing­flokks­for­set­inn Pia Kjærs­gaard hefur verið áber­andi í umræð­unni í síð­ustu viku vegna hlut­verks hennar á full­veld­is­há­tíð­inni. Pia er þekkt­ust fyrir teng­ingu sína við flokk­inn Dansk Fol­ke­parti, en Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um hann.

Bás hjá frambjóðanda Danska þjóðarflokksins
Bás hjá fram­bjóð­anda Danska þjóð­ar­flokks­ins Mynd: NILS MEILVANG / EPA

1. Stofnun

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, eða Dansk Fol­ke­parti, var stofn­aður þann 6. októ­ber árið 1995 sem klofn­ings­fram­boð úr Danska fram­fara­flokknum. Stofn­með­lim­irnir fjórir voru þau Pia Kjærs­gaard, Kristian Thulesen Dahl, Poul Nødgaard og Ole Donner, en þeir höfðu allir lotið í lægra haldi í síð­ustu kosn­ingum til for­ystu Fram­fara­flokks­ins.

2. Pia

Íslands­vin­ur­inn Pia Kjærs­gaard leiddi stofnun Þjóð­ar­flokks­ins, en hún var áður for­maður Danska fram­fara­flokks­ins. Pia fædd­ist árið 1947 í Kaup­manna­höfn og er því 71 árs, en hún hefur setið sam­fellt á þingi frá árinu 1984. Pia var for­maður Þjóð­ar­flokks­ins frá stofnun alveg til árs­ins 2012, en árið 2015 tók hún við sem for­seti Danska þjóð­ar­þings­ins. Kristian Thulesen Dahl tók við for­manns­sæti Þjóð­ar­flokks­ins af Piu og er sitj­andi for­maður.

3. Vaxandi vinsældir en aldrei í stjórn

Allt frá stofnun flokks­ins hefur hann verið með full­trúa á danska þjóð­þing­inu, en stofn­með­lim­irnir sátu allir sem þing­menn Danska fram­fara­flokks­ins. Þremur árum seinna tók hann svo þátt í fyrstu þing­kosn­ing­unum sínum og náði þar 7,4 pró­sentum atkvæða. Fylgi flokks­ins hefur vaxið nær stöðugt síðan þá, en í síð­ustu þing­kosn­ingum árið 2015 fékk flokk­ur­inn 21,1 pró­sent atkvæða. Flokk­ur­inn hefur ekki enn verið form­lega í rík­is­stjórn, en hefur þó varið þrjár minni­hluta­stjórnir falli og ein­ungis verið í stjórn­ar­and­stöðu í fimm ár frá alda­mót­unum.

4. Í sama flokki og Le Pen

Opinber stefnu­mál flokks­ins snúa að sjálf­stæði Dan­merkur, stuðn­ingi við þjóð­kirkj­una og kon­ungs­veldið, hörðum refs­ingum við lög­brotum, verndun dansks menn­ing­ar­arfs auk tak­mörk­unar á inn­flytj­endum og and­stöðu við fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Á hinn bóg­inn fer minna fyrir efna­hags­mál­efnum flokks­ins, þess utan að þau vilji við­halda nor­rænu vel­ferð­ar­kerfi og stuðla að sterku atvinnu­lífi. Stjórn­mála­fræð­ingar hafa skil­greint flokk­inn sem rót­tækan hægri­s­inn­aðan popúlista­flokk, í sama flokki og Þjóð­ar­fylk­ing Marine Le Pen og Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir.

5. Gamlir karlar á Jótlandi

Fylgi flokks­ins mælist mest á Suður-Jótlandi, Fjóni og Sjálandi utan höf­uð­borg­ar­innar, en Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn mælist ekki sterkur í flestum dönskum borgum. Sömu­leiðis er kjós­andi flokks­ins lík­legri til að vera karl­maður, á efri árum, búa við lágar tekjur og hafa litla form­lega menntun. [adspot]

6. Hreintungustefna

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er þekkt­astur fyrir þjóð­ern­is­hyggju sína, en tals­menn flokks­ins hafa oft sett sig upp á móti erlendum tungu­mála­á­hrifum.Fyrir þremur árum síðan lagði tals­maður menn­ing­ar­mála flokks­ins, Alex Ahrendt­sen, til að ensku­kennsla yrði bönnuð í dönskum rík­is­há­skólum. Sömu­leiðis hefur Martin Hen­rik­sen, rit­ari flokks­ins, mælt gegn því að inn­flytj­endur tali á móð­ur­máli sínu heima hjá sér, heldur ættu þeir að tala á dönsku. Morten Marinus, tals­maður fjöl­miðla­mála flokks­ins, hefur einnig kraf­ist þess að a.m.k. 40% allrar tón­listar á útvarps­stöðvum lands­ins skuli vera á dönsku.

7. Múslimar

Þjóð­ern­is­hyggjan nær þó dýpra en ein­ungis í hrein­tungu­stefnu, en margir með­limir flokks­ins hafa lýst yfir andúð sína gagn­vart fólki af erlendum upp­runa og þá sér­stak­lega múslimum. Í kjöl­far hryðju­verka­ára­sanna á Tví­bura­t­urn­ana í New York þann 11. sept­em­ber árið 2001 sagði Pia Kjærs­gaard vest­ræna sið­menn­ingu vera eina sið­menn­ingu heims­ins. Opin­berir með­limir flokks­ins hafa líka að minnsta kosti verið fjórum sinnum dæmdir vegna refsi­verðrar kyn­þátta­hyggju í dönskum dóm­stólum, meðal ann­ars fyrir að hafa kallað 80% pól­skra kvenna vænd­is­konur og líkt múslima við Hitler.

8. „Þú ert ekki danskur“

Með fræg­ustu atvikum með­lima Danska þjóð­ar­flokks­ins á síð­ari árum var þó fram­koma Martins Hen­rik­sen, rit­ara flokks­ins, í sjón­varps­þætt­inum Debatten fyrir tveimur árum síðan. Þar sagði hann dönskum mennta­skóla­nema að hann væri ekki danskur, þar sem hann væri af erlendu bergi brot­inn. Upp­á­kom­una má sjá hér að neðan.

9. Ásakanir um rasisma

Vegna fjand­sam­legra ummæla í garð útlend­inga auk fólks af öðrum kyn­þáttum hefur Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn oft verið ásak­aður fyrir að ýta undir kyn­þátta­hatur. Í fyrra sagði til dæmis fyrrum ráð­herra Danska vinstri­flokks­ins margt vera sam­eig­in­legt milli Þjóð­ar­flokks­ins og Ku Klux Klan. Aðrir hafa einnig bent á þá stað­reynd að flokk­ur­inn beri sama nafn og danskur nas­ista­flokkur í síð­ari heims­styrj­öld­inni, en Þjóð­ar­flokks­með­limir hafa þver­tekið fyrir lík­indi á milli þeirra og segja nafn­gift­ina vera ómerki­lega til­viljun.

10. Samkynhneigðir

Skoðanir margra innan þjóð­ar­flokks­ins eru ekki ein­ungis fjand­sam­legar í garð útlend­inga, en tals­menn hans hafa einnig tjáð sig gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra. Einn þing­maður flokks­ins kall­aði þá „fatl­aða“ og annar líkti hjóna­bandi sam­kyn­hneigðra við því að gift­ast hundi. Einnig eru þeir á móti ætt­leið­ingum sam­kyn­hneigðra para þar sem börnin fengju ekki „réttu upp­lifun­ina af fjöl­skyldu­lífi.“ Í ræðu sinni árið 2006 sagði svo Pia að tveir sam­kyn­hneigðir karl­menn myndu ekki fá gervi­frjóvgun í hennar valda­tíð, slíkt væri „hneyksli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár