Brynjar svarar gagnrýni á orð hans um fjölmiðla

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gerir engar athuga­semdir við að frétta­menn setji sínar skoð­anir fram í leið­urum eða ein­staka greinum en þá verði þeir að við­ur­kenna það og hætta að þykj­ast vera hlut­lausir og óháðir.

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að öll gagn­rýni á fjöl­miðla og skoðun á þeim sé í huga sumra aðför eða árás á þá. Það sé eins og þeir sem séu upp­teknir af tján­ing­ar­frelsi finn­ist að það eigi ekki við um stjórn­mála­menn. Þetta kemur fram á Facebook-síðu hans í dag.

[links]Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi blaða­mað­ur, er einn þeirra sem svar­aði gagn­rýni Brynjars á fjöl­miðla en Brynjar hafði áður sagt að íslenskir fjöl­miðlar væru veikasti hlekk­ur­inn í íslensku sam­fé­lagi, stund­uðu meiri póli­tík en stjórn­mála­menn og ættu heima í rusl­flokki. Kol­beinn nefndi Brynjar ekki beint eða skrif hans en hug­leið­ingum Kol­beins er aug­ljós­lega beint að gagn­rýni Brynjars frá því gær.

Brynjar segir í þess­ari nýju stöðu­upp­færslu sinni að nú sé það svo að fjöl­miðlar fjalli mjög um það sem er á borðum stjórn­mála­manna. Hann spyr sig hverjir séu þá betur til þess fallnir að gagn­rýna fjöl­miðla. „Eða eiga fjöl­miðlar að vera stikk­frí að því að þeir trúa því að þeir séu sér­stak­lega á vegum almenn­ings? Vanda­málið er að stundum eru þeir ein­fald­lega á eigin vegum.

Ég væri ekki að gagn­rýna fjöl­miðla ef ég teldi þá ekki gegna mik­il­vægu hlut­verki. Að þeir skyldu vera að mínu mati veikasti hlekk­ur­inn af þeim sem telj­ast valda- og áhrifa­hópa í sam­fé­lag­inu fór auð­vitað mikið fyrir brjóstið á mörgum og vilja nán­ari útskýr­ingar á orðum mínum. Skal orðið við því,“ segir hann. 

[adspot]

Brynjar bendir á að eng­inn neiti því að fjöl­miðlar, sér­stak­lega þeir sem telji sig hlut­lausa og óháða, hafi mjög mikil áhrif á skoð­ana­myndum og ákvarð­anir ann­arra. Því sé mik­il­vægt að fag­leg umgjörð þeirri sé sterk og að póli­tískt skoðun eða gild­is­mat ein­stakra frétta­manna verði ekki alls­ráð­andi í fréttaum­fjöllun. Ágætt sé að taka nokkur dæmi síð­ustu miss­eri til útskýr­inga þar sem skort hafi mjög á fag­mennsku og margir frétta­menn hafi fest í eigin póli­tísku skoð­unum.

Fyrsta dæmið sem hann nefnir er fréttaum­fjöll­unin um upp­reist æru. Hann segir að þar hafi margir fjöl­miðlar verið með fréttaum­fjöllun um að ráð­herra og hans flokkur væri að hygla barn­a­níð­ingum og ítrekað látið að því liggja að lög væru brotin þótt alltaf lægi fyrir að ráð­herra færi að lögum eins og for­verar hans höfðu gert alla tíð.

„Svo má nefna Lands­rétt­ar­málið þar sem skorti mjög á fag­mennsku eins og nýleg dæmi sanna. Kannski að fyrr­ver­andi dóm­ari við Mannrett­inda­dóm­stól Evrópu hafi náð að leið­rétta mesta ruglið í fjöl­miðlum um það mál. Svo er mjög algengt að ein­stakir frétta­menn geti ekki látið vera í fréttaum­fjöllun að upp­nefna íslenska og útlenda flokka sem þeir eru ekki sam­mála. Eru þeir ýmist nefndir öfga­flokkar, pop­ul­ískir og gjarnan hægri öfga­flokkar ef mikið liggur við. Einnig má taka mörg dæmi um fréttaum­fjöllun fjöl­miðla um meinta ólög­lega vopna­flutn­inga íslensks flug­fé­lags til Saudi Arabíu, kjara­deilu ljós­mæðra, Brexit fréttir og svona mætti lengi telja. Umfjöllun um þessi atriði var oft á tíðum svo gild­is­hlaðin og ekki síst hjá þeim sem telja sig full­trúa almenn­ings. Það er eins fjöl­miðlar séu með enga rit­stjórn.

Ég geri engar athuga­semdir við að frétta­menn setji sínar skoð­anir fram í leið­urum eða ein­staka greinum í sínum fjöl­miðlum. Heldur ekki við það að fjöl­miðlar hafi póli­tísk mark­mið. En þá verða þeir bara að við­ur­kenna það og hætta að þykj­ast vera hlut­lausir og óháðir,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár