Stærri fjölmiðlar ógni tilvist þeirra smærri

Í skýrslu GRECO, sam­taka ríkja gegn spill­ingu, kemur fram að íslenskir blaða­menn telji „úrelt“ lög hamla birt­ingu frétta.

Stærri fjöl­miðlar, sem tengdir eru mik­il­vægum við­skipta­blokkum og jafn­framt póli­tískum öflum, ógna til­vist smærri sjálf­stæðra miðla.

Þetta kemur fram í skýrslu GRECO, sam­taka ríkja sem horfa fyrst og síð­ast á spill­ingu, ann­ars vegar meðal vald­hafa; for­seta, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og ann­arra hand­hafa æðstu emb­ætta og hins vegar í lög­gæsl­unni; lög­reglu, Land­helg­is­gæsl­unni og toll­gæsl­unni. Skýrslan birt­ist í dag. 

Skýrslu­höf­undar taka það fram að íslenskir fjöl­miðlar gegni veiga­miklu hlut­verki í að koma í veg fyrir mis­gerðir og spill­ingu með umfjöll­unum sínum.

[links]Í skýrsl­unni er bent á að rann­sókn­ar­blaða­mennska á Íslandi þurfi að standa frammi fyrir margs konar laga­á­kvæðum sem íslenskir blaða­menn segja „úrelt“. Þessi ákvæði væru ítrekað notuð til að hindra birt­ingu við­kvæmra frétta. Þá er bent á að nokkur mál hafi verið rekin fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu.

Í skýrsl­unni er enn fremur mælst til þess að settar verði reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds við hags­muna­að­ila og aðra aðila sem leit­ast eftir því að hafa áhrif á und­ir­bún­ing lög­gjafar og önnur störf stjórn­valda. Einnig að hags­muna­skrán­inga­kerfi æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds verði bætt, sér í lagi með því að taka til­lit til verð­mætis eigna þeirra, fjár­hæðar fram­laga til þeirra og skuld­bind­inga.

Þá verði athugað hvort efni séu til að víkka skrán­ing­ar­skyld­una og láta hana ná yfir maka og börn á for­ræði við­kom­andi, með til­liti til þess að slíkar upp­lýs­ingar þyrfti ekki endi­lega að birta opin­ber­lega. GRECO vill einnig að settar verði reglur um störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds eftir að störfum fyrir hið opin­bera lík­ur.

Átján ábend­ingar til úrbóta koma fram í skýrsl­unni, þar af níu varð­andi æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds og níu á sviði lög­gæslu. Stjórn­völdum er veittur frestur til 30. sept­em­ber 2019 til að bregð­ast við ábend­ing­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár