Katrín vill ekki að ríkið eigi allt fjármálakerfið

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í ræðu sinni á Við­skipta­þingi í dag ekki skyn­sam­legt fyrir ríkið að bera meg­in­á­byrgð á öllum helstu fjár­mála­stofn­unum lands­ins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í ræðu sinni á Við­skipta­þingi í dag að ríkið eigi ekki að eiga allt banka­kerfið. Rík­is­stjórnin vilji draga úr eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum „enda ekki skyn­sam­legt fyrir ríkið að bera meg­in­á­byrgð á öllum helstu fjár­mála­stofn­unum lands­ins,“ sagði Katrín.

[links]Hún sagði lyk­il­at­riðið að skapa stöðugt og traust fjár­mála­kerfi sem geti mætt til jafns þörfum heim­ila lands­ins og ekki síður fjöl­breyttum þörfum atvinnu­lífs­ins.

Katrín sagði Íslend­inga hafa farið illa að ráði sínu við upp­bygg­ingu fjár­mála­kerf­is­ins við upp­haf þess­arar aldar. Vel hafi þó tek­ist að leysa úr þeim áskor­unum sem fylgdu hrun­inu. Það hafi þó ekki verið án fórna, og það hafi verið almenn­ingur sem færði stærstu fórn­irnar. Hún sagði því mik­il­vægt að tryggja að end­ur­reist fjá­mála­kerfi kalli aldrei aftur á sömu fórnir og að almenn­ingur fái að njóta þess árang­urs sem end­ur­reisn skili til rík­is­sjóðs.

Katrín vill að þeirri miklu vinnu sem staðið hefur yfir við end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, sem nú búi við allt annað reglu­verk en það gerði fyrir tíu árum, verði lokið. Hún vill að tekin verði afstaða til lyk­il­spurn­inga um við­skipta- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi, gagn­sæi eign­ar­halds og hæfi eig­enda.

Kjarninn greindi frá því í gær að Kaupskil, félag í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­haf­arnir, vilji virkja kaup­rétt sinn og kaupa þannig 13 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum á 23 millj­arða króna. Hægt er að lesa meira um það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár