Ríkið við það að selja 13 prósent hlut sinn í Arion banka á 23 milljarða

Þrátt fyrir að við­ræður við líf­eyr­is­sjóði hafi siglt í strand hyggst stærsti hlut­haf­inn í Arion banka nýta sér kaup­rétt á hlut rík­is­ins í bank­anum.

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefur haft sölu­ferlið á Arion banka til umræðu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og fylgst náið með fram­vindu þess. Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, eiga sæti í nefnd­inni.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans ætla Kaupskil, félag í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­hafar, að nýta sér kaup­rétt á hlut íslenska rík­is­ins í Arion banka, sem byggir á sam­komu­lagi frá árinu 2009. Líklegt er að þetta verði ákveðið á næst­unni, jafn­vel á fundi nú í kvöld.

Gangi þessi áform eftir mun ríkið fá 23 millj­arða fyrir 13 pró­sent hlut sinn í bank­anum. Stjórn­völd hafa látið kanna ítar­lega, hvernig rétt­ar­staða rík­is­ins er í mál­inu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og er það metið sem svo, að for­kaups­rétt­ur­inn sé í gildi og þá miðað við fyrr­nefndar verð­for­sendur.

Er það mat stjórn­valda í mál­inu, að þetta sé besti kost­ur­inn fyrir ríkið, það er að fara úr hlut­hafa­hópnum á þessum tíma­punkti og koma fjár­hags­lega vel frá eign­ar­haldi á bank­anum í stað þess að vera áhrifa­lít­ill hlut­hafi í minni­hluta þegar fram í sækir.

Eins og greint hefur verið frá að und­an­förnu, þá er stefnt að skrán­ingu Arion banka á markað síðar á þessu ári og hefur und­ir­bún­ingur staðið yfir und­an­farin miss­eri, en Kvika hefur umsjón með ferl­inu fyrir hönd Kaup­skila.

Viðræður við líf­eyr­is­sjóði sigldu í strand, eins og fram hefur komið, en þeir ákváðu að fara ekki í frek­ari við­ræður um að kaupa hlut í bank­anum áður en útboð hæf­ist.

Kaupskil á 57 pró­sent hlut í Arion banka, vog­un­ar­sjóðir og Goldman Sachs bank­inn eiga sam­tals um 30 pró­sent, beint, og íslenska ríkið á 13 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár