Segir íslenska neytendur fá meira úrval og gæði vegna dóms EFTA-dómstóls

EFTA-dóm­stóll­inn í Lúx­em­borg hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að bann íslenskra stjórn­valda við inn­flutn­ingi á fersku kjöti, ferskum eggjum og vörum úr óger­il­sneyddri mjólk sam­rým­ist ekki EES-samn­ingnum. Misjöfn við­brögð hafa verið við dómnum í morgun.

EFTA-dóm­stóll­inn í Lúx­em­borg hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska leyf­is­veit­inga­kerfið fyrir inn­flutn­ing á hrárri og unn­inni kjöt­vöru, eggjum og mjólk sam­rým­ist ekki ákvæðum EES-samn­ings­ins. Dóm­stóll­inn telur að það sé ósam­rým­an­legt fimmtu grein til­skip­un­ar­innar að skil­yrða inn­flutn­ing á slíkum vörum. Hann felldi dóm í tveimur málum í morgun sem Eft­ir­lits­stofnun EFTA höfð­aði gegn íslenska rík­inu og voru sam­einuð í mál­flutn­ingi fyrir dóm­stólnum.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir að dóm­ur­inn þýði að íslenskir neyt­endur fái meira úrval og meiri gæði. Hann fagnar nið­ur­stöð­unni og það gera Samtök versl­unar og þjón­ustu einnig. Bænda­sam­tök Íslands lýsa aftur á móti yfir áhyggjum sínum í frétta­til­kynn­ingu sem þau sendu frá sér í kjöl­farið og telja nið­ur­stöð­una geta valdið miklu tjóni.

Í til­kynn­ingu dóm­stóls­ins segir að hann líti svo á að íslensk lög­gjöf feli í sér bann við inn­flutn­ingi á hrárri kjöt­vöru, eggjum og mjólk. Hins vegar mæli lög­gjöfin fyrir um að inn­flutn­ingur á slíkum vörum geti verið heim­ill að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Dóm­stóll­inn taldi að þetta leyf­is­veit­inga­kerfi fæli í sér eft­ir­lit með dýra­heil­brigði í skiln­ingi til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins um dýra­heil­brigð­is­eft­ir­lit í við­skiptum innan banda­lags­ins, en hún hefur verið tekin upp í EES-samn­ing­inn. Þetta kemur fram í frétt FA.

Gagnrýna tregðu stjórnvalda

Samtök versl­unar og þjón­ustu sendu þann 6. des­em­ber 2011 kvörtun á Eft­ir­lits­stofnun EFTA vegna inn­leið­ingar íslenskra stjórn­valda á reglu­gerð ESB um almennar meg­in­reglur og kröfur sam­kvæmt lögum um mat­væli, um stofnun Mat­væla­ör­ygg­is­stofn­unar Evrópu og um máls­með­ferð vegna öryggis mat­væla. Íslensk lög­gjöf felur í sér inn­flutn­ings­tak­mark­anir á fersku kjöti, unnu sem óunnu, kældu sem frosnu, sem og inn­mat og slát­ur­úr­gang hvort sem um ræðir svína-, nauta-, lamba-, geita- eða ali­fugla­kjöt eða kjöt af villtum dýrum og ýmsum mjólk­ur­vörum. Inn­flytj­endur verða sam­kvæmt gild­andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram marg­vís­leg gögn til Mat­væla­stofn­unar.

Samkvæmt SVÞ telja þau bann þetta ganga gegn ákvæðum EES-samn­ings­ins varð­andi frjálsa vöru­flutn­inga og að eft­ir­lits­kerfi hér á landi með inn­flutn­ingi á kjöti feli í sér landamæra­eft­ir­lit sem er ekki í sam­ræmi við lög­gjöf EES-samn­ings­ins. Að mati SVÞ hefur ekk­ert komið fram um að íslenskum stjórn­völdum sé ekki unnt að gæta að heil­brigði manna og dýra innan ramma mat­væla­lög­gjafar EES-samn­ings­ins. Þá hafi stjórn­völd ekki sýnt fram á með rök­studdum hætti að inn­lendum hags­munum sé ógnað með inn­flutn­ingi á fersku kjöti en sam­kvæmt mat­væla­lög­gjöf EES-samn­ings­ins eru ríkar kröfur gerðar til áhættu­mats og öryggis mat­væla og hvílir rík ábyrgð á fram­leið­endum kjöts hvað þetta varðar.

SVÞ benda á að dóm­ur­inn er til sam­ræmis við dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, og ráð­gef­andi álits EFTA-dóm­stóls­ins í því til­tekna máli, frá því í nóv­em­ber 2016 þar sem eitt aðild­ar­fé­laga sam­tak­anna lét reyna á umræddar tak­mark­anir. Íslenska ríkið áfrýj­aði því máli til Hæsta­réttar og má vænta dóms vorið 2018.

Í frétta­til­kynn­ing­unni fagna Samtök versl­unar og þjón­ustu nið­ur­stöðu EFTA-dóm­stóls­ins sem er enn einn áfanga­sigur í bar­áttu sam­tak­anna í máli þessu sem hófst með kvörtun SVÞ árið 2011. Að sama skapi gagn­rýna SVÞ tregðu stjórn­valda að bregð­ast við rök­studdum og mál­efna­legum nið­ur­stöðum dóm­stóla í mál­inu. Skora sam­tökin á stjórn­völd og nýtt þing að taka á mál­inu í sam­ræmi við þjóð­rétt­ar­legar skuld­bind­ingar íslenska rík­is­ins. Er það krafa SVÞ að inn­flutn­ingur á fersku kjöti, sem unnið er í sam­ræmi við strangar sam­evr­ópskar kröfur og undir eft­ir­liti ann­arra EES-ríkja, verði heim­il­aður hér á landi í sam­ræmi við EES-lög­gjöf.

Meira úrval og meiri gæði

En hvað mun þetta þýða fyrir neyt­endur? Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir í sam­tali við Kjarnann að í fyrsta lagi þýði þessi dómur að íslenskir neyt­endur fái meira úrval og meiri gæði. Kjöt­inn­flytj­endur muni geta flutt inn gæða­kjöt og ostar sem ekki hafa sést áður í íslenskum búðum muni koma á markað. Hann segir að sam­keppni á sölu á ferskum eggjum muni aukast og inn­flutn­ingur á líf­rænum vörum, til að mynda eggjum og kjöti, muni aukast. Þetta ætti að stuðla að hag­stæð­ara verði og meira úrvali. 

Í fram­haldi af dómi EFTA-dóm­stóls­ins í morgun hvetur Félag atvinnu­rek­enda stjórn­völd til að hætta þegar í stað vís­vit­andi brotum á EES-samn­ingnum og afnema bann við inn­flutn­ingi á fersku kjöti, eggjum og vörum úr óger­il­sneyddri mjólk.

„Þessi nið­ur­staða EFTA-dóm­stóls­ins hefur verið fyr­ir­séð lengi og kemur ekki á óvart. Þegar Alþingi ákvað á sínum tíma að við­halda inn­flutn­ings­banni gagn­vart ferskum búvörum var það að brjóta EES-samn­ing­inn vís­vit­andi,“ segir Ólafur. „Nú getur íslenska ríkið ekki lengur dregið lapp­irnar í þessu máli. Það þarf ein­fald­lega að afnema inn­flutn­ings­bannið og leyfa inn­flutn­ing á fersku kjöti, eggjum og mjólk­ur­vörum úr óger­il­sneyddri mjólk. Það er sjálf­sagt að Ísland beiti sömu var­úð­ar­ráð­stöf­unum til að hindra salmon­ellu- og kam­fýló­bakt­ersmit og hin nor­rænu ríkin gera. Til þess að það megi verða, þarf að vinna und­ir­bún­ings­vinnu sem íslensk stjórn­völd hefðu átt að vera byrjuð á fyrir löngu og er ámæl­is­vert að hefur ekki verið gert, í ljósi þess að lengi hefur legið fyrir hvernig nið­ur­staðan yrði í þessum dóms­málum. Það hlýtur að verða eitt af fyrstu verkum nýrrar rík­is­stjórnar að gera gang­skör að því að Ísland upp­fylli samn­ings­skuld­bind­ingar sínar í þessum efnum.“

Niðurstaðan getur valdið miklu tjóni

Bænda­sam­tök Íslands telja nið­ur­stöð­una geta valdið miklu tjóni. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna. Þar segir að um sé að ræða þýð­ing­ar­mikið hags­muna­mál íslensks land­bún­aðar en fjöl­margir hafi bent á þá áhættu sem felst í auknum inn­flutn­ingi á hráu kjöti, óger­il­sneyddum mjólk­ur­vörum og hráum eggjum. Þrátt fyrir mótrök fjölda aðila úr heil­brigð­is­geir­anum, bænda og búvís­inda­manna og fleiri sem vara við óheftum inn­flutn­ingi þá kom­ist EFTA-dóm­stóll­inn að annarri nið­ur­stöðu.

„Bænda­sam­tök Íslands harma nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins en þau hafa um ára­bil barist gegn inn­flutn­ingi á hráu kjöti, óger­il­sneyddum mjólk­ur­vörum og hráum eggjum. Að mati sam­tak­anna mun nið­ur­staða dóms­ins að óbreyttu geta valdið íslenskum land­bún­aði miklu tjóni og ógnað bæði lýð­heilsu og búfjár­heilsu. Ísland er ekki aðili að evr­ópskum trygg­ing­ar­sjóðum sem bæta tjón ef upp koma alvar­legar sýk­ingar í land­bún­aði og þyrfti rík­is­valdið ásamt bændum að bera slíkar byrðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­tak­anna, segir dóm­inn valda von­brigðum en bændur muni ekki gef­ast upp. „Við höfum barist í þessum málum um ára­bil og erum núna að skoða næstu skref í sam­vinnu við okkar lög­fræð­inga og ráð­gjafa. Hvað sem öðru líður þá munum við áfram verja okkar stöðu sem er ein­stök. Það hefur komið skýrt fram í umræðu um þessi mál að okkar fær­ustu vís­inda­menn í sýkla­fræði og bæði manna- og búfjár­sjúk­dómum hafa varað sterk­lega við inn­flutn­ingi á hráu kjöti og öðrum þeim vörum sem geta borið með sér smit. Við eigum hreina og heil­brigða búfjár­stofna og erum heppin að því leyti að mat­væla­sýk­ingar eru fátíðar hér­lendis. Það er bein­línis skylda okkar að við­halda þeirri góðu stöðu,“ segir Sindri.

Íslenska ríkinu ber að breyta lögum

Í frétta­til­kynn­ingu frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu segir að í lögum um dýra­sjúk­dóma og varnir gegn þeim og í reglu­gerð um varnir gegn því að dýra­sjúk­dómar og sýktar afurðir ber­ist til lands­ins sé kveðið á um leyf­is­veit­inga­kerfi fyrir inn­flutn­ingi á hráum kjöt­vörum, hráum eggjum og eggja­vörum og vörum úr þeim og óger­il­sneyddri mjólk.

Íslensk stjórn­völd hafi verið þeirrar skoð­unar að leyf­is­veit­inga­kerfið sam­ræmd­ist EES-samn­ingnum og hafi þeim sjón­ar­miðum verið haldið uppi í málsvörnum íslenska rík­is­ins. EFTA-dóm­stóll­inn komst hins vegar að annarri nið­ur­stöðu.

Einnig segir í til­kynn­ing­unni að rétt sé að taka fram að þessi dómur fjallar ekki um það magn sem flutt er inn af kjöti, eggjum og mjólk til lands­ins, ein­göngu það heil­brigð­is­eft­ir­lit sem við­haft er við inn­flutn­ing á þessum vörum.

„Ljóst er að fram til þessa hafa íslensk stjórn­völd brotið gegn EES samn­ingum og þurfa nú að gera sitt ítrasta á þessu sviði til að upp­fylla þær skuld­bind­ingar sem Ísland hefur und­ir­geng­ist. Samkvæmt samn­ingi EFTA-ríkj­anna um stofnun eft­ir­lits­stofn­unar og dóm­stóls skulu hlut­að­eig­andi EFTA-ríki gera nauð­syn­legar ráð­staf­anir til að fram­fylgja dómum EFTA-dóm­stóls­ins. Íslenska rík­inu ber sam­kvæmt þessu að breyta lögum og reglum til sam­ræmis við nið­ur­stöðu dóms­ins. Íslensk stjórn­völd munu vinna að því að heim­ildir EES-samn­ings­ins um eft­ir­lit með inn­flutn­ingi á dýra­af­urðum verði nýttar, til dæmis varð­andi salmon­ellu. Þessu tengdu verður áfram unnið að úrvinnslu á til­lögum starfs­hóps um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería á Íslandi,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár