Zúistar ætla að endurgreiða sóknargjöld

Meðlimir trú­fé­lags­ins Zuism munu fá end­ur­greiðslur á sókn­ar­gjöldum upp úr miðjum nóv­em­ber­mán­uði, að sögn for­stöðu­manns félags­ins. Þeim er einnig boðið að láta sókn­ar­gjöldin renna til góð­gerða­mála.

Trú­fé­lagið Zuism mun hefja end­ur­greiðslur á sókn­ar­gjöldum til með­lima félags­ins upp úr miðjum nóv­em­ber­mán­uði. Ágúst Arnar Ágústs­son, for­stöðu­maður Zuism, segir að umsókn­ar­frestur sé til 15. nóv­em­ber og stefnt sé að því að greiða tveimur dögum eftir að honum lýkur. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá trú­fé­lag­inu.

,,Eftir langa bið og mikla bar­áttu er loks­ins komið að því að Zúistar geti fengið end­ur­greiðslu á sókn­ar­gjöldum. Meðlimum er einnig boðið að láta sókn­ar­gjöldin renna til góð­gerða­mála. Zuism hefur nú þegar styrkt Barna­spít­ala Hrings­ins um 1,1 milljón til tækja­kaupa. Félagið styrkti einnig neyð­ar­sjóð UNICEF með 300 þús­und króna fram­lagi í fyrra­dag og mun halda áfram að styrkja önnur góð­gerð­ar­mál­efni á næstu miss­erum,“ segir Ágúst.

Hann segir jafn­framt að Zuism sé eina trú­fé­lag lands­ins sem leyfir sókn­ar­börnum að ráð­stafa sínum sókn­ar­gjöldum. „Við hvetjum fólk til að skrá sig í félagið fyrir 1. des­em­ber því stefnt er að því að end­ur­greiðslur muni halda áfram á næsta ári.“

Miklar deilur hafa orðið í kringum trú­fé­lagið og gaf fyrrum öld­unga­ráð Zúista út yfir­lýs­ingu í vik­unni þar sem það harm­aði þá stöðu sem nú er uppi í trú­fé­lag­inu Zuism og hvatti alla með­limi til að skrá sig úr félag­inu í síð­asta lagi fyrir 1. des­em­ber.

„Við þökkum fylgj­endum okkar fyrir þol­in­mæði og stuðn­ing und­an­farin ár en nú er því miður komið að leikslokum hjá okkur,“ segir í yfir­lýs­ingu fyrrum öld­unga­ráðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár