Fyrrum öldungaráð Zúista hvetur meðlimi til að skrá sig úr félaginu

Eftir tveggja ára bar­áttu fyrir yfir­ráðum í félagi Zúista hefur fyrrum öld­unga­ráð gefið frá sér yfir­lýs­ingu.

Fyrrum öld­unga­ráð Zúista harmar þá stöðu sem nú er uppi í trú­fé­lag­inu Zuism og hvetur alla með­limi til að skrá sig úr félag­inu í síð­asta lagi fyrir 1. des­em­ber í yfir­lýs­ingu sem þeir sendu frá sér í morgun. „Við þökkum fylgj­endum okkar fyrir þol­in­mæði og stuðn­ing und­an­farin ár en nú er því miður komið að leikslokum hjá okkur,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Samkvæmt nýj­ustu tölum Hag­stof­unnar eru 2.845 með­limir skráðir í félagið.

Upphaf þessa máls var fjöl­miðlaum­fjöllun vorið 2015 um trú­fé­lagið Zuism sem eng­inn virt­ist gang­ast við og hafði ein­ungis fjóra með­limi. Þar kom fram að emb­ætti sýslu­manns á Norð­ur­landi eystra hefði með aug­lýs­ingu í Lög­birt­inga­blað­inu skorað á með­limi félags­ins að gefa sig fram. Að öðrum kosti yrði félagið lagt niður þar sem lág­marks­fjöldi með­lima var langt frá því að upp­fylla við­mið í reglu­gerð ráðu­neytis um skrán­ingu opin­berra trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

„Við, sem köll­uðum okkur öld­unga­ráð Zúista, fórum fyrir stórum hópi fólks sem vildi umbætur á lagaum­hverfi trú­fé­laga. Vegna þess hversu erfitt er að fá ný trú­fé­lög við­ur­kennd sáum við tæki­færi í þeirri stöðu sem var uppi í trú­fé­lag­inu Zúism. Við söfn­uðum því lág­marks­fjölda með­lima og gáfum okkur fram við sýslu­mann svo að félagið yrði ekki afskráð. Við litum á þetta sem tæki­færi til að skapa umræðu um hið gall­aða og órétt­láta trú­fé­laga- og sókn­ar­gjalda­kerfi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Í kjöl­farið fengu þau leið­bein­ingar frá emb­ætti sýslu­manns um hvernig þau ættu að taka við stjórn félags­ins sem þau segj­ast hafi farið eftir og skilað öllum til­hlýði­legum gögnum sem óskað var eftir. Þann 1. júní 2015 fékk full­trúi þeirra opin­bera við­ur­kenn­ingu emb­ættis sýslu­manns að hann væri for­stöðu­maður trú­fé­lags­ins og að þau færu með völd í þessu umkomu­lausa trú­fé­lagi.

„Nið­ur­staða hug­mynda­vinnu okkar var að bjóða félags­mönnum að fá sókn­ar­gjöldin end­ur­greidd eða gefa þau aftur til sam­fé­lags­ins með því að styrkja góð­gerð­ar­mál. Í krafti hinnar opin­beru við­ur­kenn­ingar hófum við svo í nóv­em­ber 2015 gjörn­ing­inn þar sem við aug­lýstum zúistafélagið og end­ur­greiðslu­leið­ina. Á ein­ungis tveimur vikum fengum við um 3000 nýja með­limi og vakti félagið athygli langt út fyrir land­stein­ana. Þann 1. des­em­ber 2015 var félagið orðið eitt stærsta trú­fé­lag lands­ins.

Snemma í des­em­ber 2015 hófst svo stjórn­sýslu­martröð, sem hefur nú loks­ins tekið enda. Þá kom í ljós að upp­haf­legu stofn­endur trú­fé­lags­ins, sem voru algjör­lega ótengdir okkur og okkar áformum, voru enn í for­svari fyrir rekstr­ar­fé­lag á bak við trú­fé­lagið. Þetta kom okkur á óvart svo ekki sé meira sagt, sér­stak­lega í ljósi þess að leið­bein­ingar stjórn­valds­ins til okkar höfðu ávallt verið að þetta væri alls ekki vanda­mál, trú­fé­lag í skiln­ingi lag­anna væri sjálf­stæð ein­ing og óháð rekstr­ar­fé­lag­inu á bak við það. Það væri því ein­falt mál að stofna nýtt rekstr­ar­fé­lag fyrir trú­fé­lagið, enda værum við opin­ber­lega við­ur­kenndir for­ráða­menn trú­fé­lags­ins.

Í jan­úar 2016 hóf­umst við því handa við að stofna nýtt rekstr­ar­fé­lag til að taka við sókn­ar­gjöld­unum svo við gætum í kjöl­farið greitt þau út til okkar með­lima eins og við höfðum gert ráð fyrir. Þá kom í ljós að innan stjórn­kerf­is­ins var hreint ekki alls staðar sami skiln­ingur lagður í lög um skráð trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög. Þrátt fyrir skýrar fyrri leið­bein­ingar þess efnis þá var okkur nú synjað um stofnun nýs rekstr­ar­fé­lags þar sem ekki væri hægt að aðgreina trú­fé­lög og rekstr­ar­fé­lög. Það var ljóst að án rekstr­ar­fé­lags­ins gætum við hvorki mót­tekið né ráð­stafað þeim fjár­munum sem félagið átti til­kall til. Í febr­úar 2016 óskuðum við því eftir því að allar greiðslur frá Fjár­sýslu rík­is­ins til trú­fé­lags­ins yrðu frystar til að vernda hags­muni með­lima trú­fé­lags­ins. Fjár­sýslan varð við þeirri beiðni og voru fjár­munir félags­ins í fryst­ingu hjá rík­is­sjóði fram á haust 2017.

Nú í byrjun nóv­em­ber, eftir um tveggja ára bar­áttu okkar fyrir yfir­ráðum í félag­inu, er end­an­lega ljóst að málið er tapað. Ágúst Arnar Ágústs­son er nú for­stöðu­maður félags­ins og sú opin­bera við­ur­kenn­ing sem okkur var látin í té af yfir­völdum í júní 2015 hefur verið felld úr gildi. Við höfum því engin ítök eða völd lengur í trú­fé­lag­inu Zuism og getum þar af leið­andi ekki borið ábyrgð á því að sókn­ar­gjöld verði end­ur­greidd eða gefin til góð­gerð­ar­mála. Við frá­biðjum okkur einnig til­raunir núver­andi for­ráða­manna félags­ins til að eigna sér upp­haf­leg mark­mið okkar með gjörn­ingnum, enda komu þeir hvergi að þeirri hug­mynda­vinnu,“ segir jafn­framt í yfir­lýs­ing­unni.

Þau segja að nið­ur­staðan í þessu máli sé afleið­ing stjórn­sýslu­mistaka sem skrif­ast á þá lagaum­gjörð sem þau hafi upp­haf­lega verið að gagn­rýna með gjörn­ingi þeirra. Þau segj­ast vona að þessi fjar­stæðu­kenndu mála­lok verði til þess að lagaum­hverfi kerf­is­ins verði breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár