Þríhliðaviðræður um stækkun Laugardalsvallar samþykktar

Íslenska ríkið, Reykja­vík­ur­borg og KSÍ hafa sam­þykkt að hefja form­legar við­ræður um stækkun Laug­ar­dalsvallar. Í kjöl­farið verður tekin ákvörðun um hvernig stækk­unin verður. Hún gæti kostað á bil­inu fimm til átta millj­arða króna.

Laugardalsvöllur í dag.
Laug­ar­dals­völlur í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenska ríkið, Reykja­vík­ur­borg og Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) hafa sam­þykkt að hefja þrí­hliða við­ræður um að stækka Laug­ar­dals­völl. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans voru fyr­ir­hug­aðar við­ræður kynntar í borg­ar­ráði í dag og á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun.

Nú stendur yfir blaða­manna­fundur með for­svars­mönnum KSÍ, Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra og Bjarna Bene­dikts­syni, starf­andi for­sæt­is­ráð­herra, þar sem verið er að kynna umrætt sam­komu­lag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er sá val­kostur að KSÍ myndi kaupa Laug­ar­dals­völl og í kjöl­farið standa eitt að upp­bygg­ingu vall­ar­ins með styrkjum frá UEFA og FIFA ekki lengur tal­inn raun­hæfur. Vilji er til þess að stækka völl­inn þannig að hann geti tekið við fleiri áhorf­endum en þeim tæp­lega tíu þús­und sem hann tekur nú í sæti í ljósi þess að áhugi á íslenska karla­lands­lið­inu er þannig að það selst upp á hvern ein­asta lands­leik á nokkrum mín­útum. Þá er völl­ur­inn rek­inn með tapi á ári hverju og Reykja­vík­ur­borg er því að nið­ur­greiða starf­semi hans.

Í kynn­ingu sem verið að að fara yfir í höf­uð­stöðvum KSÍ núna kemur fram að nýr völlur án þaks muni kosta um fimm millj­arða króna. Hins vegar er stefnan sett á það að byggja fjöl­nota­völl með þaki þar sem stofn­kostn­aður yrði meiri en rekstr­ar­tekjur gætu orðið mun hærri, m.a. með tón­leika­haldi. Slíkur völlur myndi kosta um átta millj­arða króna. Ef hann verður að veru­leika þá verður hlaupa­brautin fjar­lægð og völl­ur­inn sjálfur myndi fær­ast tólf metra til hliðar.

Heim­ildir Kjarnans herma að búið sé að ræða við flesta for­menn þeirra stjórn­mála­flokka sem mögu­legt sé að verði í rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum. Á meðal þeirra allra sé vilji til að halda áfram með verk­efnið og því virð­ist vera þverpóli­tísk sam­staða um að ríkið komi að upp­bygg­ingu Laug­ar­dalsvallar með beinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár