Um 5 þúsund íbúðir til leigu í gegnum Airbnb

Umsvif leiguris­ans Airbnb á net­inu, eru jafn­vel enn meiri á Íslandi en talið var.

Samkvæmt gögnum frá Airbnb voru heilar íbúðir á skrá á land­inu öllu í ágúst sl. tæp­lega 5.000 tals­ins og hafði þeim fjölgað um tæp 65 pró­sent frá sama tíma á síð­asta ári.

Frá þessu er greint í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem Seðla­banki Íslands gefur út.

Mikill meiri­hluti íbúð­anna er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Nýting slíkra íbúða heldur jafn­framt áfram að aukast og voru um 77 pró­sent fram­boð­inna gistin­átta bókuð í ágúst.

Í þeim mán­uði voru að jafn­aði bók­aðar um 19 nætur á hverja slíka íbúð. Fjöldi útleigðra nátta hefur auk­ist jafnt og þétt sl. 2 ár og nam meira en 13 nóttum í mán­uði það sem af er árinu. Því má gera ráð fyrir að nokkur hluti þess­ara íbúða nýt­ist ekki til ann­arrar búsetu en skamm­tíma­út­leigu.

Til sam­an­burðar voru 3.255 íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar sam­kvæmt taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins. „Fleyg­ur­inn sem skamm­tíma­leigan rekur milli fram­boðs og eft­ir­spurnar á íbúða­mark­aði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins virð­ist því stór,“ segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Í rit­inu segir enn fremur en að fátt bendi til ann­ars en að eft­ir­spurn eftir íbúðum muni halda áfram að aukast, „sem ætti að öðru óbreyttu að stuðla að frek­ari verð­hækk­unum“.

Fram kemur að efna­hagur heim­ila fer batn­andi, aðflutn­ingur fólks, sem þarf þak yfir höf­uðið, var meiri á fyrri hluta þessa árs en á sama tíma í fyrra og bæt­ist við nátt­úru­lega fólks­fjölgun.

Fast­eigna­verð hefur að með­al­tali hækkað um tæp­lega 20 pró­sent á síð­ast­liðnum 12 mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár