Ný ríkisstjórn tekur ákvörðun um framhald loftslagsáætlunar

Helstu áherslur nýrrar aðgerða­á­ætl­unar í lofslags­málum liggja fyrir. Umhverf­is­ráð­herra bindur vonir við að verk­efnið verði sett af stað á ný eftir að ný rík­is­stjórn tekur við.

Björt Ólafsdóttir er umhverfis- og auðlindaráðherra í starfstjórninni.
Björt Ólafs­dóttir er umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í starf­stjórn­inni. Mynd: Umhverfisráðuneytið

Starfs­stjórnin sem nú stýrir ráðu­neytum Íslands hefur ákveðið að tekin verði saman stöðu­skýrsla um fram­gang vinnu við gerð nýrrar aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum fyrir Ísland.

Þetta kemur fram í svari frá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans. Ný rík­is­stjórn sem mun taka við eftir kosn­ing­arnar 28. októ­ber þarf svo að taka ákvörðun um fram­hald vinn­unar.

[links]Vinna við gerð nýrrar aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum hófst í febr­úar á þessu ári. Áætlunin er í fyrsta sinn unnin jafnt þvert á ráðu­neyti og átti það vera til marks um breiðan póli­tískan vilja til þess að gera lofts­lags­málum hátt undir höfði. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar sem stóð að þess­ari nýju nálgun féll 15. sept­em­ber.

Fyr­ir­spurn Kjarnans fjall­aði um það hvort vinnan við aðgerða­á­ætl­un­ina myndi lifa af, í ljósi þess að þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinna fer fram á ábyrgð margra ráðu­neyti sam­tímis.

Í svari ráðu­neyt­is­ins er haft eftir Björtu Ólafs­dóttur, starf­andi umhverf­is­ráð­herra, að helstu áherslur áætl­un­ar­innar liggi nú þegar fyrir. „Vinnan við aðgerða­á­ætl­un­ina hefur gengið mjög vel og meg­in­á­herslur hennar liggja þegar fyrir þó að sjálf­sögðu sé hún ekki full­kláruð,“ skrifar Björt.

[adspot]

„Hún átti að liggja fyrir í lok árs en, í ljósi breyttrar stöðu var ákveðið að taka saman stöðu­skýrslu verk­efn­is­ins. Stefnt er á að sú sam­an­tekt verði til­búin fljót­lega svo hægt verði að ræða inni­hald hennar á vett­vangi stjórn­mál­anna í kom­andi kosn­inga­bar­áttu.“

„Það bíður nýrrar rík­is­stjórnar að ákveða með fram­hald verk­efn­is­ins en þar sem þessi vinna hefur farið fram í góðri sam­vinnu allra hlut­að­eig­andi þá bind ég miklar vonir við að verk­efnið verði keyrt af stað sem fyrst eftir að ný rík­is­stjórn tekur við og áætl­unin liggi fyrir snemma næsta ár,“ skrifar Björt Ólafs­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár