Björt: Fólk er svipt frelsi sínu í Reykjanesbæ

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra segir að ástandið í Reykja­nesbæ vegna meng­andi stór­iðju í Helguvík sé grafal­var­legt.

Björt ÓIafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Björt ÓIafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Björt Ólafs­dóttur, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir að ástandið í Reykja­nesbæ vegna meng­andi stór­iðj­unnar í Helguvík sé grafal­var­legt. „Fólk er svipt frelsi sínu því það lokar dyrum, gluggum og þorir ekki að senda börn sín út í and­rúms­loft sem það finnur greini­lega sjálft að ógnar heilsu þeirra og líðan. Ég hef gefið út þau skila­boð bæði úta­við og inn­á­við að ég vil enga afslætti gefa á meng­un­ar­stöðlum, lýð­heilsu­við­miðum og aðgerðum í þá veru.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hún setti á Facebook í morgun.

Þar segir hún að á síð­asta sól­ar­hring hafi mikið af fólki sett sig í sam­band við sig út af stöð­unni hjá United Silicon. „ Ég fæ að svara hér því ég hef ekki tölu eða utan­um­hald á þeim póstum sem ég er "tögguð" í að á þessum tíma­punkti er mér ekki ljóst hver nákvæm­lega staðan er hjá fyr­ir­tæk­inu eða hvað hefur gerst, en ég hef þegar beðið um upp­lýs­ingar frá UST [Umhverf­is­stofnun] þess efnis og bíð svara.

En það er þó skýrt að ef slökknað hefur á ljós­boga­ofni US (eða hann farið undir ákv hita­stig) þá hefur Umhverf­is­stofnun þegar boðað stöðvun á fram­leiðslu í bréfi sínu til fyr­ir­tæk­is­ins í sl. viku.“

Áform eru uppi um að stöðva rekstur kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helgu­vík 10. sept­em­ber næst­kom­andi til að gera umbætur á bún­aði henn­ar. Þetta kom fram í bréfi sem Umhverf­is­stofnun sendi fyr­ir­tæk­inu í síð­ustu viku.

United Silicon rekur kís­­il­­málm­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­stöðvun 14. ágúst síð­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­leikar í rekstri kís­­il­­málm­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­leiðslu í nóv­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­ur­­tek­inna bil­ana í bún­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­ar­­dómur í deilu félags­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­ins. Sam­­kvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­­arð króna.

Félagið skuldar Arion banka um átta millj­arða króna auk þess sem bank­inn átti 16,3 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, sem var met­inn á einn millj­arð króna og hefur verið nið­ur­færður að fullu í bókum hans. Auk þess áttu þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hlutafé og skulda­bréf á United Silicon upp á 2,2 millj­arða króna. hluti þeirrar upp­hæðar er tap­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár