Ferðamálaráðherra segir gagnrýni ekki koma á óvart

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að ef hún vildi bara taka vin­sælar og skemmti­legar ákvarð­anir ætti hún að finna sér annað að gera. Gagnrýni á hækkun á virð­is­auka­skatti í ferða­þjón­ustu kom henni ekki á óvart.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, er gestur Kjarnans í kvöld.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, er gestur Kjarnans í kvöld.

Málefni ferða­þjón­ust­unnar eru til umfjöll­unar í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut í kvöld. Þar er rætt um stöð­una í ferða­þjón­ust­unni, áskor­anir og tæki­færi, og þá ekki síst í sam­hengi við mikla gagn­rýni á áætl­aða hækkun virð­is­auka­skatts á grein­ina.

Þórunn Elísabet Boga­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son eru stjórn­endur sjón­varps­þátt­ar­ins Kjarnans, sem er á dag­skrá Hring­brautar í kvöld klukkan 21, og þau ræða þá gjör­breyttu stöðu sem er uppi í ferða­þjón­ust­unni nú miðað við fyrir örfáum árum.

Ísland hefur á fáum sviðum náð að halda í við breyt­ing­arnar og aukn­ing­una. Tekju­mögu­leik­arnir sem ríkið hefur af ferða­manna­straumnum, ekki síst til þess að standa straum af inn­viða­upp­bygg­ingu, koma við sögu, og þeirri spurn­ingu velt upp hvort ekki hefði átt að fara í miklu meiri inn­viða­upp­bygg­ingu fyrir mörgum árum síðan.

Gestur þátt­ar­ins er Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, og hún er meðal ann­ars spurð út í gagn­rýn­ina á virð­is­auka­skatts­hækk­un­ina, sem hefur ekki síst komið úr hennar eigin flokki.

Þórdís seg­ist hafa búist við gagn­rýn­inni og hún komi ekki á óvart. Ef hún hefði haldið að hún gæti farið í póli­tík til að taka bara vin­sælar og skemmti­legar ákvarð­anir hefði hún átt að finna sér eitt­hvað annað að gera. Fjár­mála­á­ætl­unin geri ráð fyrir hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ust­una á næsta ári og ekk­ert hafi komið fram um annað en að það eigi að standa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár