Hlutafé útgáfufélags Morgunblaðsins aukið um 400 milljónir

Tilkynnt verður um aukn­ingu hluta­fés Árvakurs á næstu vikum, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins.

Eyþór keypti nýverið eignarhlut útgerðarfélaganna Samherja, Vísis og Síldarvinnslunnar í útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Eyþór keypti nýverið eign­ar­hlut útgerð­ar­fé­lag­anna Samherja, Vísis og Síld­ar­vinnsl­unnar í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Samsett mynd

Hlutafé í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins verður aukið um 400 millj­ónir króna á næstu vikum, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins í dag. Fjöl­miðla­nefnd upp­færði upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á útgáfu­fé­lag­inu 18. apríl síð­ast­lið­inn.

Eyþór Arnalds, fjár­festir og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg, keypti nýverið 26,62 pró­sent hlut í Þórsmörk ehf, einka­hluta­fé­lag­inu sem á nær allt hlutafé í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um kaup­verð á hlutn­um, en Eyþór keypti hlut­inn af þremur fyr­ir­tækjum: Sam­herja, Vísi og Síld­ar­vinnsl­unni.

[links]Eyþór varð með kaup­unum stærsti ein­staki eig­andi Árvakurs. Félög tengd Ísfé­lagi Vest­manna­eyja eru hins vegar enn með sam­an­lagt stærstan eign­ar­hlut.

Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­sent hlut og félagið Hlynur A, í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dótt­ur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,38 pró­sent hlut. Auk þess á félagið Legalis 12,37 pró­sent hlut. Eig­endur þess eru m.a. Sig­ur­björn Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Árvak­urs og stjórn­ar­maður í Ísfé­lag­inu, og Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags­ins. Sam­an­lagður hlutur þess­arar blokkar í Árvakri er 42,18 pró­sent. Gunn­laugur Sævar er einnig eig­andi að hlut í Lýsi ehf., sem á 1,97 pró­sent hlut í Árvakri. Bæði Gunn­laugur Sævar og Sig­ur­björn sitja í stjórn þess fyr­ir­tæk­is.

Aðrir eig­endur eru að mestu aðilar tengdir íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Á meðal Þeirra eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Rammi hf. og Skinn­ey-­Þinga­nes.

[adspot]

Eyþór vildi ekki tjá sig við Mark­að­inn en benti á að for­kaups­réttur ann­arra hlut­hafa á bréfum fyr­ir­tækj­anna þriggja sem hann keypti eign­ar­hlut sinn af væri enn virkur. Samkvæmt því sem fram kemur í Mark­að­inum þá er hluta­fjár­aukn­ingin vel á veg komin núver­andi eig­endur Árvakurs taka þátt í henni.

Árvakur hefur tapað 1,5 millj­arði króna frá því að nýir eig­endur tóku við félag­inu 2009 og fram til loka árs 2015. Á þeim tíma hafa þeir eig­endur sett að minnsta kosti 1,2 millj­arða króna í rekstur félags­ins og fengið 4,5 millj­arða króna afskrif­aða hjá Íslands­banka. Tap Árvak­urs var 164 millj­ónir króna á árinu 2015.

Árs­reikn­ingur fyrir árið 2016 hafði ekki verið birtur 18. apríl en Har­aldur Johann­essen, fram­kvæmda­stjóri Árvak­urs og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sagði í til­kynn­ingu í fyrra­haust að líkur væru á halla­rekstri á árinu 2016 líka. Sam­kvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar var hlutafé Árvak­urs aukið um 7,4 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra og hækk­unin öll greidd með pen­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár