„Algjörlega óviðunandi“ að vita ekki hverjir standa að baki kaupum í Arion

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra hefur óskað eftir því við for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að upp­lýst verði um end­an­lega eig­endur í Arion banka. Hann segir óvið­un­andi fyrir Íslend­inga að vita ekki hverjir standi þarna á bak við.

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir það „algjör­lega óvið­un­andi fyrir Íslend­inga“ að vita ekki hverjir standi á bak við kaup á tæp­lega 30 pró­senta hlut í Arion banka. Hann hafi haft sam­band við for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um það að upp­lýst verði hverjir séu end­an­legir eig­endur þess­ara hluta.

Í gær var til­kynnt um að þrír vog­un­ar­sjóðir, Taconic Capi­tal, Och-ZiffCapi­tal og Attestor Capi­tal, og Gold­man Sachs-­bank­inn hefðu saman keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka. Kaup­verðið eru 48,8 millj­arðar króna og selt var í lok­uðu útboði. Fjár­fest­arnir fá einnig kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar á verði sem hefur ekki verið upp­gef­ið, en er sagt hærra en það sem þeir greiddu í þess­ari lotu. Ekkert liggur hins vegar fyrir um það hverjir eru end­an­legir eig­endur þess fjár sem verið er að nota.

Fjár­mála­eft­ir­litið til­kynnti svo í dag að það muni ekki fara yfir hæfi vog­un­ar­sjóð­anna til að fara með virkan eign­ar­hlut í bank­anum. Til að FME meti hæfi aðila til að fara með virkan eign­ar­hlut þurfa þeir að eiga í minnsta lagi tíu pró­sent hlut, en tveir þeirra keyptu 9,99 pró­senta hlut.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Benedikt út í málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Hún tal­aði meðal ann­ars um mik­il­vægi þess að upp­lýsa um end­an­lega eig­endur og sagði að þessi tala, 9,99 pró­sent, væri vænt­an­lega ekki til­viljun. Því sagð­ist Benedikt vera sam­mála, það sé mjög ólík­legt að talan sé til­viljun. „Ég vil líka taka undir með hátt­virtum þing­manni að það er afar mik­il­vægt í slíkum til­vikum að vita hverjir eru end­an­legir eig­endur, það er að segja hverjir eiga þessa sjóði sem um ræðir.“

Hann sagði rétt að upp­lýsa að það væri ekki fjár­mála­ráðu­enytið sem metur hæfi manna til að fara með eign­ar­hlut, heldur Fjár­mála­eft­ir­litið. „Þó almenna reglan sé að miðað sé við 10 pró­sent eign­ar­hald þá getur Fjár­mála­eft­ir­litið, ef eign­ar­hald er til dæmis dreift, horft á aðila sem eiga veru­legan eign­ar­hlut eða eign­ar­hlut sem er lík­legur til að vera ráð­andi sér­stak­lega þótt töl­unni 10 pró­sent sé ekki náð.“ Þetta þyrfti að fara yfir, en honum væri ekki kunn­ugt um að kaup­end­urnir væru tengdir aðilar í skiln­ingi laga.

„Kannski eru þeir ekki tengdir aðilar en þeir ráð­ast sam­eigin­elga í þessi kaup. Þarf ekki Fjár­mála­eft­ir­litið að kanna hæfi þeirra?“ spurði Katrín þá ráð­herr­ann. Hún sagði það algjört prinsipp­mál og spurn­ing um almanna­hags­muni, og spurði hvernig ráð­herr­ann hygð­ist tryggja að þetta yrði gert.

Því svar­aði Benedikt að hann hefði haft sam­band við for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna máls­ins, og það væri „algjör­lega óvið­un­andi fyrir Íslend­inga að vita ekki hverjir standa þarna á bak við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár