Prófkjörsbarátta kostaði átta frambjóðendur meira en milljón

Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Óli Björn Kárason vörðu öll yfir milljón í sín framboð. Þau eru nú öll á þingi.
Jón Gunn­ars­son, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Óli Björn Kárason vörðu öll yfir milljón í sín fram­boð. Þau eru nú öll á þingi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

14 fram­bjóð­endur í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa skilað útdráttum úr upp­gjörum vegna próf­kjar­anna til Rík­is­end­ur­skoð­unar. Framboð þeirra kost­uðu sam­an­lagt yfir 21 milljón króna, og átta fram­bjóð­endur vörðu meira en milljón króna.

69 fram­bjóð­endur í próf­kjörum Pírata hafa skilað yfir­lýs­ingu um að þeir hafi varið innan við 400 þús­undum króna í sín fram­boð. Fjórir fram­bjóð­endur Sam­fylk­ing­ar­innar hafa skilað slíkri yfir­lýs­ingu.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir náði einna glæstasta árangrinum í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Hún fékk fram­lög upp á rúm­lega 3,3 millj­ónir króna og varði rúm­lega 2,9 millj­ónum í fram­boðið. Hún fékk fjár­fram­lög frá 27 ein­stak­lingum, sem gáfu henni sam­tals 1,8 millj­ónir króna, auk þess sem hún fékk 400 þús­und krónur frá einum ein­stak­lingi, Elsu Pét­urs­dóttur. Áslaug fékk fram­lög frá sex fyr­ir­tækjum upp á tæpa milljón, en fyr­ir­tækin voru Steiboch-þjón­ustan, Gravits slf, fast­eigna­fé­lagið Hýsill, Aktis, Skipa­miðl­ar­inn og Investis.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er í odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík norður. Framboð hans kost­aði tæp­lega 2,9 millj­ónir króna, en sjálfur reiddi hann fram 949 þús­und krónur. Hann fékk fjár­fram­lög frá þremur ein­stak­lingum upp á 250 þús­und krónur og 1,65 millj­ónir króna frá ell­efu fyr­ir­tækjum.

Ásmundur Frið­riks­son lenti í öðru sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Hann fékk fram­lög upp á tæp­lega 2,7 millj­ónir króna og fram­boð hans kost­aði nán­ast nákvæm­lega það mikið. Hann fékk fjár­fram­lög frá sex ein­stak­lingum upp á 265 þús­und krónur og svo 2,675 millj­ónir frá 31 fyr­ir­tæki.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, fyrr­ver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, var felld í próf­kjör­inu þar og end­aði í fjórða sæti, sem hún þáði ekki. Hún varði tæpum tveimur millj­ónum króna í fram­boð sitt, fékk 585 þús­und sam­tals frá fimm ein­stak­lingum og 1,4 millj­ónir frá þrettán fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum.

Óli Björn Kárason lenti í fjórða sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Framboð hans kost­aði 1,5 millj­ónir króna. 600 þús­und komu frá þremur fyr­ir­tækjum, 30 þús­und frá tveimur ein­stak­lingum og stærstan hluta, 913 þús­und krónur, komu frá honum sjálfum.

Sigríður Andersen lenti í fimmta sæti í sam­eig­in­lega próf­kjör­inu í Reykja­vík. Hennar fram­boð kost­aði 1,55 millj­ónir króna. Hún til­tekur ekki hversu margir ein­stak­lingar gáfu henni fram­lög, en þau námu 693 þús­und krónum. Fjögur fyr­ir­tæki gáfu henni sam­tals 850 þús­und krónur, og hún sjálf lagði fram tæp­lega 11 þús­und krónur.

Jón Gunn­ars­son lenti í þriðja sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og fram­boð hans kost­aði 1,375 millj­ónir króna. Eigin fram­lög hans námu 75 þús­und krónum, hann fékk engin fram­lög frá ein­stak­lingum en 1,3 millj­ónir króna frá sex fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum.

Hildur Sverr­is­dóttir er fyrsti vara­þing­maður flokks­ins í Reykja­vík suður, en hún lenti í sjö­unda sæti í sam­eig­in­lega próf­kjör­inu í borg­inni. Framboð hennar kost­aði 1,2 millj­ónir króna en hún fékk um hund­rað þús­und krónum hærri fram­lög. Sjálf lagði hún fram 300 þús­und krónur og fékk 306 þús­und frá níu ein­stak­lingum. Hún fékk 700 þús­und frá fimm fyr­ir­tækjum.

Teitur Björn Ein­ars­son lenti í þriðja sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, og fram­boð hans kost­aði 984 þús­und krónur. Tólf ein­stak­lingar gáfu honum 134 þús­und krónur og fjögur fyr­ir­tæki sam­tals 850 þús­und krónur.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir lenti í öðru sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, og hennar fram­boð kost­aði 914 þús­und krónur. Hún fékk 264 þús­und krónur frá 17 ein­stak­lingum og 650 þús­und krónur frá sex fyr­ir­tækjum.

Bryndís Har­alds­dóttir lenti í fimmta sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi en var færð upp í annað sætið. Hún fékk fram­lög upp á 910 þús­und krónur og fram­boð hennar kost­aði jafn­mikið. Hún lagði sjálf fram 130 þús­und krónur, fékk 380 þús­und krónur frá fjórum ein­stak­lingum og 400 þús­und krónur frá þremur fyr­ir­tækjum.

Elín Hirst hlaut ekki braut­ar­gengi í próf­kjör­inu í Suð­vest­ur­kjör­dæmi þrátt fyrir að hafa setið á þingi á síð­asta kjör­tíma­bili. Framboð hennar kost­aði 979 þús­und krónur, þar af lagði hún sjálf fram tæp­lega 300 þús­und krónur. Hún fékk fram­lag frá einum ein­stak­lingi upp á 50 þús­und krónur og 630 þús­und frá níu fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum.

Vil­hjálmur Árnason lenti í þriðja sæti í Suð­ur­kjör­dæmi og fram­boð hans kost­aði 850 þús­und. Hann fékk 230 þús­und krónur frá þremur ein­stak­lingum og 620 þús­und krónur frá sex fyr­ir­tækjum.

Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir lenti í sjötta sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi en fram­boð hennar kost­aði 780 þús­und krónur. Fram­lögin komu öll frá sex fyr­ir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár