Katrín Júlíusdóttir nýr framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja

Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF). Katrín sat á þingi í 13 ár, frá 2003 til 2016, fyrir flokk sinn en gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu fyrir nýliðnar kosn­ingar. Hún gengdi emb­ætti iðn­að­ar­ráð­herra og síðar fjár­mála-og efna­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013.

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja eru heild­ar­sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja á Íslandi. Stjórn­ar­for­maður þeirra er Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka. Aðrir stjórn­ar­menn eru Hannes Frímann Hrólfs­son, for­stjóri Virð­ingar, Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, Jakob Sig­urðs­son, for­stjóri VÍS, Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri Kviku, Sigurður Við­ars­son, for­stjóri TM, Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans og Vil­hjálmur G. Pálsson, frá Spari­sjóði Aust­ur­lands.

Í til­kynn­ingum frá SFF segir Katrín að hún sé spennt fyrir því að taka á við nýja starfið. „Í störfum mínum í stjórn­málum í gegnum tíð­ina hefur það alltaf verið mér mikið kapps­mál að vinna að sam­eig­in­legri sýn og ná árangri í þeim verk­efnum sem liggja fyrir. Starfs­um­hverfi fjár­mála­fyr­ir­tækja er sífellt að breyt­ast og ég hlakka til að fá að taka þátt í því að koma að verk­efnum sem tengj­ast þeirra hags­muna­málum.“

Katrín tekur við starf­inu af Guðjóni Rún­ars­syni, sem starf­aði hafði sem fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna frá stofnun þeirra árið 2006. Tilkynnt var um starfs­lok Guðjóns í lok sept­em­ber.

Til­gangur og meg­in­verk­efni Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja eru að vera málsvari fjár­mála­fyr­ir­tækja í hags­muna­málum þeirra og stuðla að því að starfskil­yrði þeirra séu sam­keppn­is­hæf. SFF gæta hags­muna aðild­ar­fé­laga sam­tak­anna gagn­vart stjórn­völdum, eft­ir­lits­stofn­unum, almenn­ingi og atvinnu­lífi og aðstoða þau við að byggja upp heil­brigt og traust fjár­mála­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár