Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki lögfestingu jafnlaunavottunar

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, segir að jafn­rétt­is­málið um jafn­launa­vottun hafi ekki hlotið mik­inn hljóm­grunn í við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn frekar en sjáv­ar­út­vegs­mál.

Lög­fest­ing jafn­launa­vott­unar hlaut ekki mik­inn hljóm­grunn meðal Sjálf­stæð­is­manna í við­ræðum Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar við þá um helg­ina. Þetta kemur fram í færslu Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, þing­manns Við­reisnar, á Facebook.

Viðreisn hélt blaða­manna­fund fyrir kosn­ingar til að kynna til­lögu sína um jafn­launa­vottun og hét því að málið yrði fyrsta þing­mál flokks­ins.

Þor­gerður Katrín fer yfir ýmis for­gangs­mál flokks­ins í færsl­unni á Facebook. „Jafn­rétt­is­mál eru risa­mál í okkar augum. Þar stöndum við enn frammi fyrir óþol­andi kyn­bundnum launa­mun. Ekkert þok­ast og menn ypta öxlum og segja þetta svo flókið og erfitt. En það er ekki svo. Það er aðgerða­leysið sem er vont og erfitt. Því sögðum við að fyrsta mál okkar myndi miða að því að ná fram kynja­jafn­rétti í gegnum jafn­launa­vottun. Jafn­rétt­is­mál eru alvöru­mál sem snerta alla og í því ljósi lögðum við í Viðreisn fram lausn í mál­inu,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

„Því er ekki að leyna að þetta jafn­rétt­is­mál hlaut ekki mik­inn hljóm­grunn í við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um helg­ina ekki frekar en sjáv­ar­út­vegs­málin.“

Þor­gerður Katrín kemur meira inn á sjáv­ar­út­vegs­málin og segir mark­aðs­leið­ina sem Viðreisn hafi lagt til vera hóf­sama. Enginn hafi verið að biðja um koll­steypu heldur aukið rétt­læti. „Þessi mik­il­væga atvinnu­grein á ekki í sífellu að vera bit­bein hjá þjóð­inni og stjórn­mála­mönnum. Þess vegna lögðum við fram lausn til sáttar og stöð­ug­leika.“

Flokk­ur­inn hafi líka viljað end­ur­skoða búvöru­samn­ing­ana og hafi lagt áherslu á mynt­ráð sem lausn í pen­inga­málum.

„Í heil­brigð­is­málum var stefna okkar skýr. Heil­brigð­is­kerfið þarf að end­ur­reisa með mark­vissum aðgerðum með fókus á sjúkra­húsin okkar, heilsu­gæslu, hjúkr­un­ar­heim­ili og lýð­heilsu. Þetta brann á fólki. Áherslum okkar í að efla sál­fræði­þjón­ustu og setja hana inn í sjúkra­trygg­ing­ar­kerfið var einnig tekið fagn­andi. Líka öðrum hug­myndum um end­ur­skoðun á greiðslu­þátt­töku­kerf­inu með það fyrir augum að lækka kostnað ákveð­inna hópa. Heil­brigð­is­málin hvíldu þungt á fólki fyrir kosn­ingar.“

Þor­gerður Katrín seg­ist geta nefnt mun fleiri mál­efni sem hafi brunnið á fólki fyrir kosn­ingar, líkt og umhverf­is­mál, alþjóða­sam­starf og mennta­mál.

„Í Viðreisn höfum við lagt okkur fram við að horfa á mál­efnin og vera lausn­a­miðuð, bæði fyrir og eftir kosn­ingar. Við gerum okkur líka grein fyrir því að nauð­syn­legt er að gera mála­miðl­anir.“ Hú segir það vera fróð­legt að sjá hvort þau frjáls­lyndu við­horf sem Viðreisn og Björt fram­tíð hafi sett fram hljóti braut­ar­gengi í næstu lotu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár