Hagstofunni „þykir miður“ að hafa klúðrað verðbólguútreikningi

Hagstofa Íslands segir að sér „þykir miður“ að mis­tök hafi orðið við útreikn­ing á vísi­tölu neyslu­verðs með þeim afleið­ingum að verð­bólga var veru­lega van­metin frá mars 2016 og til og með sept­em­ber sama árs. Stofn­unin tekur málið mjög alvar­lega og ætlar að reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt end­ur­taki sig. Þetta kemur fram í frétt á vef hennar.

Í gær var greint frá því því að Hag­stof­unni hefði reiknuð húsa­leiga verið van­metin við útreikn­ingi vísi­tölu neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu. Þessi mis­tök hafa nú verið leið­rétt með þeim afleið­ingum að vísi­talan hækk­aði um tæp 0,5 pró­sent á milli mán­aða og langt umfram allar opin­berar spár. Þetta þýðir líka að 12 mán­aða verð­bólga hefur verið veru­lega van­metin und­an­farið hálft ár. Árs­verð­bólga, sem var 0,9 pró­sent í ágúst, mælist því 1,8 pró­sent í sept­em­ber.

Mistök Hag­stof­unnar hafa víð­tæk áhrif. Þeir sem tekið hafa ný verð­tryggð hús­næð­is­lán á því tíma­bili sem þau ná yfir munu til að mynda þurfa að greiða upp­safn­aðar verð­bætur af lánum sínum. Þeir sem tóku lán í sept­em­ber­mán­uði munu auk sjá þau hækka hins vegar skarpar en ann­ars hefði orðið. Þeir sem ætla sér að taka verð­tryggð hús­næð­is­lán þessa dag­anna ættu að bíða fram í nóv­em­ber hið minnsta svo þeir þurfi ekki að greiða upp­safn­aðar verð­bætur tíma­bils sem þeir voru ekki með lán, vegna mis­taka Hag­stof­unnar. Þá mun húsa­leiga þeirra sem er bundin við þróun vísi­tölu neyslu­verðs hækka um kom­andi mán­að­ar­mót.

Áhrifin á skulda­bréfa­markað í gær voru einnig mikil og verð­bólgu­á­lag hækk­aði skarpt. Þá er ljóst að hluti þeirra for­senda sem nefndar voru fyrir vaxta­lækkun Seðla­banka Íslands fyrir skemmstu eru nú brostnar. Grein­ing­ar­að­ilar sem spáðu áfram­hald­andi lækkun stýri­vaxta hafa þegar breytt spám sínum í að vextir hald­ist óbreyttir.

Hag­stofan sagði í gær að það liti út fyrir að mann­leg mis­tök hafi orsakað reikni­skekkj­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár