Olíuverð rýkur upp – Samþykkt að draga úr framleiðslu

OPEC ríkin náðu saman um að draga úr olíu­fram­leiðslu. Áhrifin komu strax fram, í hækk­andi verði.

Verð á olíu hækk­aði mikið í gær á alþjóða­mörk­uðum, og er því spáð víða, að svo geti farið að olíu­verð muni hækka nokkuð á næst­unni. Í Banda­ríkj­unum nam hækk­unin á tunn­unni af hrá­olíu 5,6 pró­sentum sem telst mikið á einum degi. Kostaði tunnan rúm­lega 47 Banda­ríkja­dali í lok dags í gær.

Framleiðslan skorin niður

Ástæðan fyrir því að olíu­verð geti hækkað á næstu miss­erum, hefur ekki síst verið sögð stjórn­ast af því að olíu­fram­leiðslu­ríkin í OPEC muni ná sam­komu­lagi um að draga úr fram­leiðslu, meðal ann­ars til að meira jafn­vægi náist á mark­aðnum á heims­vísu. Mikið offram­boð af olíu hefur leitt til lágs verðs.

Í gær bár­ust svo fréttir af því að óform­legu sam­komu­lagi hefði verið náð um að draga úr fram­leiðslu. Talið er að verðið geti farið hækk­andi á næstu miss­erum vegna þessa, en frek­ari sam­dráttur í fram­leiðslu gæti verið í kort­unum, sam­kvæmt umfjöllun CNN. Þetta er fyrsta óform­lega sam­komu­lag OPEC ríkj­anna, um að draga úr fram­leiðslu, síðan 2008. Ekki er þó talið öruggt að form­legt sam­komu­lag náist, en næsti fundur OPEC er á dag­skrá í nóv­em­ber. Áhrifin gætu orðið víð­tæk, og þykir ákvörð­unin enn fremur sýna að heims­bú­skap­ur­inn sé að glíma við tölu­verðan slaka þessi miss­erin.

Bensínvaktin

Á Íslandi gætu afleið­ing­arnar af því birst einkum í hækk­andi bens­ín­verði, en síðan óbeint í hærra verði á inn­fluttum vörum. Sem ýtir svo undir verð­bólgu almennt, en hún hefur hald­ist lág að und­an­förnu og mælist nú 0,9 pró­sent. Lesendur eru hvattir til að fylgj­ast vel með þró­un­inni á bens­ín­vakt Kjarnans, en henni er ætlað að auð­velda fólki að fylgj­ast með gangi mála á þessum mik­il­væga neyt­enda­mark­aði.

Á und­an­förnum tveimur árum hefur verð á olíu lækkað hratt. Það hefur farið úr 110 Banda­ríkja­dölum á tunn­una í 40 til 50 Banda­ríkja­dali nú, en það hefur sveifl­ast á því bili á und­an­förnum mán­uðum. Lægst fór verðið í 26 Banda­ríkja­dali í febr­úar, en hefur síðan verið að fær­ast hægt upp á við.

Þessi mikla lækkun á olíu hefur komið sér vel fyrir Ísland, þar sem dregið hefur úr verð­bólgu­þrýst­ingi, og olíu­kostn­aður, t.d. útgerða og flug­fé­laga, hefur lækkað veru­lega.

Sádí-Arabía og Íran

Orku­mála­ráð­herra Sádí-Arabíu, Khalid al-Falih, lét hafa eftir sér í gær, í við­tali við Wall Street Journal, að svo gæti farið að frekara sam­komu­lag, sem gæfi meiri vís­bend­ingar um stöðu mála til fram­tíðar, myndi nást á milli OPEC ríkja á fyr­ir­hug­uðum fundi þeirra í nóv­em­ber.

Full­trúar stjórn­valda í Íran hafa barist gegn því að fram­leiðsla verði dregin saman. Íran er nú byrjað að byggja upp hag­kerfið á nýjan leik, eftir að við­skipta­þving­anir voru felldar niður á landið, og myndi fram­leiðslu­minnkun hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir Íran.

Aðrar olíu­fram­leiðslu­þjóðir, eins og Noregur, Rússland og Brasilía, sem standa utan OPEC sam­tak­anna, hafa frekar talað fyrir því að jafn­vægi verði komið á milli fram­boðs og eft­ir­spurnar – þá með fram­leiðslu­minnkun – svo að verðið geti farið að fær­ast upp á við. Í Noregi hefur verið talað um sárs­auka­mörk olíu­iðn­að­ar­ins í land­inu séu í kringum 63 Banda­ríkja­dali á tunn­una, sem er óra­fjarri stöðu mála nú.

Sádí-Arabía er stærsti ein­staki olíu­fram­leið­andi heims­ins, og segir í umfjöllun CNN að stærstur hluti fram­leiðslu­minnk­un­ar­innar mun verða hjá fursta­rík­inu í mið­aust­ur­löndum.

Til OPEC ríkja telj­ast Alsír, Angóla, Ekvador, Íran, Írak, Gabon, Katar, Kúveit, Líbýa, Nígería, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin, Sádí-Arabía og Venes­ú­ela. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár