Dramatísk niðursveifla í breskum hagtölum eftir Brexit

Breska hag­kerfið hefur ekki minnkað jafn hratt síðan í kjöl­far efna­hags­hruns­ins 2008.

Philip Hammond er í Peking að ræða viðskiptasamband Bretlands og Kína.
Philip Hammond er í Peking að ræða við­skipta­sam­band Bret­lands og Kína. Mynd: EPA

Hagkerfi Bret­lands hefur ekki minnkað hraðar síðan í efna­hags­hrun­inu árið 2008 og 2009 og nú. Samkvæmt hag­grein­ingu breska fyr­ir­tæk­is­ins Markit hafa bæði þjón­ustu- og fram­leiðslu­geirar orðið fyrir barð­inu á ákvörðun Breta um að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Philip Hammond, fjár­mála­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn Theresu May, segir í sam­tali við Sky News að Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hafi „dældað traust á breskum fyr­ir­tækjum“. Nú sé Bretland á óvissu­tímum. „Verk­efnið okkar er að end­ur­byggja eins mikið traust og við getum, eins hratt og við getum. Hammond segir að til þess að end­ur­vekja traustið verði Bretland að ná skjótu sam­komu­lagi við Evr­ópu­sam­bandið og Kína. Ráð­herran er þessa stund­ina staddur í Peking þar sem hann fundar með kín­verskum ráða­mönnum.

Haft er eftir Chris Williamsson, hag­fræð­ingi Markit, í breskum fjöl­miðlum í dag að júlí hafi verið ein­stak­lega dramat­ískur fyrir efna­hags­lífið; atvinnu­rekstur hafi ekki lypp­ast jafn hratt síðan fjár­málakreppan náði hæðum sínum á fyrri hluta árs­ins 2009.

Þetta er fyrsta úttekt Markit síðan þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan var haldin í lok júní, en þaðan ber­ast hag­tölur og grein­ingar á meira en 1.200 breskum fyr­ir­tækjum í hverjum mán­uði. Í tíst­inu hér að neðan frá Faisal Islam, frétta­manni Sky News, má sjá línu­ritið sem sýnir hag­sveiflur síð­ustu ára í Bret­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár