Panamaskjölin: Umfjöllun á einum stað

Panama­skjölin, gögn frá Mossack Fonseca sem þýska blaðið Süddeutsche Zeitung komst yfir og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim, hafa valdið miklum usla hér sem ann­ars staðar. Kjarninn er einn þeirra fjöl­miðla sem nú vinnur úr skjöl­unum sem varða Ísland ásamt Reykja­vík Media.

Á fimmtu­dag birt­ust í Kjarn­anum þrjár greinar um umfangs­mikil við­skipti hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Stefaníu Pálma­dóttur.

Félagið Guru Invest, sem skráð er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, og er með heim­il­is­festi í Panama, hefur fjár­magnað fjölda­mörg verk­efni í Bret­landi og á Íslandi eftir hrun. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður hennar, var skráður með pró­kúru í félag­inu og teng­ist mörgum verk­efn­anna sem það hefur fjár­magnað.

Þá greindi Kjarninn frá því að skuld tveggja félaga í eigu fjöl­skyldu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar var greidd úr félagi Ingi­bjargar árið 2010. Það voru 2,4 millj­arðar sem greiddir voru upp í 3,3 millj­arða skuld félag­anna.

Þá er eign­ar­hald og fjár­mögnun á Sports Direct á Íslandi að hluta til tengt félagi í Panama í eigu Ingi­bjargar. Félag Jóns Ásgeirs í Panama lán­aði Þú Blásól 1,1 milljón evra. Panama­skjölin sýna hvernig fjár­munum hefur verið ráð­stafað frá Panama til Íslands.

Umfjöllun Kjarnans úr Panama­skjöl­unum má finna alla á þess­ari slóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár