Hótanir Sádi-Araba gætu komið í bakið á þeim sjálfum

Sádi-Arabar hóta að selja í skyndi hluta 750 millj­arða Banda­ríkja­dala eignum sínum í Banda­ríkj­unum, komi til laga­breyt­inga sem falla þeim ekki í geð. Inni­stæðu­lausar hót­anir, segja hag­fræð­ingar.

Sádi-Arabar gætu til lengdar litið tapað stór­kost­lega á því að selja í skyndi banda­rískar eignir sem landið á, upp á um 750 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um nærri 100 þús­und millj­örðum króna.

New York Times greindi frá því á föstu­dag­inn, að stjórn­völd í Sádi-Arabíu hafi komið til skila­boðum til skila, í heim­sókn í Washington DC á dög­unum, að til greina kæmi að selja verð­bréf og aðrar eignir í Banda­ríkj­unum, verði frum­varp sem ger­ir það að verk­um að ríkið njóti ekki leng­ur frið­helgi banda­rískra dóm­stóla vegna hryðju­verka­árása á banda­rískri grund að lög­um.

Lögin eru talin áhrifa­mikil fyrir Sádi-Arabíu og form­festa mik­il­vægt við­skiptapóli­tískt sam­band ríkj­anna. Sádi-Arabía hefur í gegnum ára­tugi byggt upp mikla efna­hags­lega hags­muni í Banda­ríkj­unum. Eign­irnar eru meðal ann­ars bundnar í ýmsum innviðum sem mik­il­vægir eru fyrir olíu­iðnað, svo sem hafn­ar­starf­semi og vöru­flutn­ingum. Þá á ríkið sem fyrr segir eignir upp á 750 millj­arða Banda­ríkja­dala sem telj­ast verið auð­selj­an­legar, og eru aðal­lega í trygg­ingum og verð­bréfum.

Sádi-Ar­ab­ar hafa alltaf þver­tekið fyr­ir það að ríkið hafi átt þátt í árás­unum 11. sept­em­ber 2001, á tví­bura­t­urn­anna í New York, og að rann­sókn­ar­nefnd 9/​11 hefði ekki fundið neitt sem bend­ir til þess að rík­is­stjórn Sádi-Ar­ab­íu ætti þátt í árás­unum.

Samtök aðstand­enda þeirra sem lét­ust í árás­unum hafa lengi barist fyrir því að frið­helgi gagn­vart Sádi-Arabíu verði felld niður, og að öll gögn um árás­ina verði gerð opin­ber, til að leiða hið sanna í ljós. Ekki sé ásætt­an­legt að Banda­ríkin sé með kon­ungs­ríkið í skjóli sínu, ef það hefur átt beina aðkomu að mann­skæð­asta hryðju­verki sem framið hefur verið í Banda­ríkj­unum.

Í New York Times segir að lengi hafi verið uppi get­gátur og orðrómur um að emb­ætt­is­menn í Sádi-Arabíu hafi komið að und­ir­bún­ingi árásanna. Nið­ur­staða og gögn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafa ekki verið gerð opin­ber, og því liggur ekki fyrir hvaða álykt­anir nefndin dró varð­andi þessi atriði. Það þykir gefa vís­bend­ingu um að ein­hver tengsl kunni að vera, fyrst laga­breyt­ingar um frið­helg­ina eru til skoð­unar og umræðu.Lögin, sem eru frá 1976, gera það ómögu­legt að ákæra með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í Sádi-Arabíu eða hátt­setta emb­ætt­is­menn lands­ins fyrir banda­rískum dóm­stólum, alveg sama hvaða athafnir það eru sem eru til rann­sóknar.

Hag­fræð­ingar, sem New York Times ræðir við í dag, segja að ef Sádi-Arabar láti verða af því að selja eignir, þá gæti það dýpkað efna­hags­leg vanda­mál lands­ins. Kon­ungs­ríkið hefur gengið í gegnum erf­ið­leika að und­an­förnu, eftir mikið verð­fall á olíu og offram­boð á mörk­uðum. Að und­an­förnu hafa láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki lækkað láns­hæfi­ein­kunnir rík­is­ins um eitt þrep, og hefur það leitt til auk­ins van­trausts á stoðir efna­hags rík­is­ins.

Þrátt fyrir það, gæti eigna­salan verið högg fyrir Banda­ríkin til skamms tíma, en talið er ólík­legt að Sádi-Arabar láti verða af þessu. Ekki mætti þó van­meta stöðu Sádi-Arabíu og enn­fremur digra sjóði kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Þeir væru geymdir víða, og áhrifin af stefnu­breyt­ingu rík­is­ins þegar kemur að ávöxtun fjár­muna geta verið mikil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár