Obama: Eiturlyfjafíkn er heilsuvandamál ekki glæpsamlegt athæfi

Forseti Banda­ríkj­anna segir að breyta þurfi um stefnu þegar kemur að fíkni­efnum og vanda­málum sem þeim tengj­ast. Horfi verði til þess að fíknin sé heilsu­vanda­mál.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, segir að breyta þurfi um stefnu stjórn­valda og síður hug­ar­fari fólks, þegar kemur að eit­ur­lyfjafíkn. Hún sé heilsu­vanda­mál en ekki glæp­sam­legt athæfi. Þetta kom fram í ræðu sem hann fluti á ráð­stefnu um eit­ur­lyfjafíkn og fylgi­fiska hennar sem haldin er í Atlanta.

„Í of langan tíma höfum við litið á eit­ur­lyfjafíkn í gegnum refs­ingar í rétt­ar­kerf­inu. Eina leiðin til að vinna gegn vanda­málum sem fylgja eit­ur­lyfjafíkn er að draga úr eft­ir­spurn, og það er helst gert með því að horfa á vand­ann sem lýð­heilsu­vanda­mál en ekki glæp­sam­legt athæfi,“ sagði Obama.

Obama kynnti einnig á ráð­stefn­unni breyt­ingar á stefnu stjórn­valda, sem miða að því að styrkja með­ferð­ar­úr­ræði og hefur 116 millj­ónum Banda­ríkja­dala, um 16 millj­örðum króna, verið varið til verk­efn­is­ins nú þegar.

Obama sagði það vera lang­tíma­verk­efni að breyta um stefnu, en hið fyrsta væri þó að við­ur­kenna eit­ur­lyfjafíkn­ina sem heilsu­vanda­mál. Þá væri mik­ill sigur unn­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár