Segir Sigmund Davíð mögulega hafa framið landráð og eigi að segja af sér

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að leiða megi að því rök að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hafi orðið upp­vís að land­ráðum. Hann telur að Sig­mundur Davíð þurfi að víkja úr stól for­sæt­is­ráð­herra. Þjóð­ar­leið­togi sem er að semja fyrir hönd þjóðar sinnar og hefur sem ein­stak­lingur hags­muna að gæta með þeim sem hann er að semja við og gegn þjóð­inni sé óhæfur til þess að sinna starfi sínu og því megi leiða rök að land­ráði. Þetta kemur fram í aðsendri grein eftir Kára sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Kári hefur farið mik­inn und­an­farna mán­uði í skrifum á aðsendum greinum og hafa þær oftar en ekki snú­ist um for­sæt­is­ráð­herra.

Ástæða þessa er hið svo­kall­aða Wintris-mál, sem snýst um að eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra átti miklar eignir í aflands­fé­lagi og 523 milljón króna kröfur í slitabú föllnu bank­anna án þess að greina frá því. Um eign­irnar og kröf­urnar var ekki upp­lýst fyrr en fyrir tveimur vikum síðan, í kjöl­far þess að hópur alþjóð­legra rann­sókn­ar­blaða­manna kom fyr­ir­spurn um eign­irnar á for­sæt­is­ráð­herra­hjónin.

Í grein sinni sinni segir Kári að Sig­mundur Davíð verði að stíga upp úr stól sínum og hefja þraut­ar­göngu sem gæti endað „þar sem síst skyldi“. Ef hann verði ekki neyddur til að gera það af „lúðulökum og lufsum“ sem sitja á Alþingi þá er Kári viss um að for­sæt­is­ráð­herra muni gera það af fúsum og frjálsum vilja því hann sé góður drengur sem þyki vænt um þjóð sína.

Kári segir rök­semdir til stuðn­ings máli sínu tví­þættar: Annars vegar hafi samn­ingar við kröfu­hafa föllnu bank­anna ein­ungis skilað 300 millj­örðum króna þegar for­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar hefðu í fyrra lofað allt að 850 millj­örðum króna. „Og nú kemur í ljós, Sig­mundur Davíð, að þú ert í hópi kröfu­haf­anna sem bera 550 millj­örðum meira úr býtum en stefnt var að á síð­asta vori. Það er með öllu óásætt­an­legt að þjóðin frétti nú að mað­ur­inn sem leiddi rík­is­stjórn­ina sem smíð­aði í raun réttri sam­komu­lagið við kröfu­haf­ana sé einn af þeim. Það þýðir ekk­ert að segja að það sé konan þín en ekki þú sem eigi kröf­urnar. Lögin um inn­herj­a­við­skipti setja sömu reglur fyrir maka í öllum til­fellum og allar reglur um hags­muna­á­rekstra gera ráð fyrir að hags­munir maka leiði til sömu hags­muna­á­rekstra og þínir eigin. Það er ekki bara óásætt­an­legt að þú skulir hafa tekið þátt í sam­ing­unum heldur með öllu óskilj­an­legt að þú skulir hafa haldið að það væri í lagi og haldir það enn þann dag í dag. Í því end­ur­spegl­ast dóm­greindar-skortur sem gæti endað í sögu­bókum. Þjóð­ar­leið­togi sem er að semja fyrir hönd þjóðar sinnar og hefur sem ein­stak­lingur hags­muna að gæta með þeim sem hann er að semja við og gegn þjóð­inni er óhæfur til þess að sinna starfi sínu og ef hann heldur því leyndu má leiða að því rök að hann hafi orðið upp­vís að land­ráðum. Skiptir þá litlu hvers eðlis hags­mun­irnir eru sem um ræðir eða hvort hann græðir á hags­muna­á­rekstr­inum eða tapar.“

Hins vegar segir Kári að kröfur í föllnu bank­ana hafi gengið kaupum og sölum og þær upp­lýs­ingar sem for­sæt­is­ráð­herra hafi haft í mögu­legt fram­tíð­ar­verð­mæti þeirra hljóti að flokk­ast sem inn­herj­a­upp­lýs­ingar. „Sú stað­reynd að þú bjóst að þessum upp­lýs­ingum á sama tíma og þú áttir kröfur í bank­ana og gast notað þær til þess að taka ákvarð­anir um að selja eða ekki gerir þig sekan um inn­herj­a­við­skipti. Sú ákvörðun að selja ekki er engu létt­væg­ari í þessu sam­hengi en sú að selja. Það er athygl­is­vert og óheppi­legt fyrir orðstír þinn að það verð sem kröfu­hafar fá fyrir sinn snúð núna er tölu­vert hærra en það sem lægst var borgað fyrir kröf­urnar á mark­aði. Það þarf ekki að teygja sig langt til þess að heyra sam­hljóm milli þessa og vand­ræða Baldurs Guð­laugs­sonar, fyr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem seldi hluta­bréf sín í Lands­bank­anum rétt fyrir hrun.“

Kári segir lík­legt að það séu aðilar í póli­tík og utan sem eru honum ósam­mála um þessi efni. Næsta víst sé þó að margir sjái þetta á sama hátt. „Þar af leið­andi kem­urðu til með að hrekj­ast úr emb­ætti að end­ingu þótt svo þú berj­ist gegn því með kjafti og klóm. Því ráð­legg ég þér að sýna auð­mýkt og lít­il­læti og segja af þér til þess að koma í veg fyrir að þjóðin þurfi að eyða þeirri orku í enn eina innri bar­átt­una sem mætti ann­ars nýta til upp­bygg­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kári

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár