Spá 428 milljarða gjaldeyristekjum vegna ferðaþjónustu

Ferða­þjón­usta er orðin að grund­vall­arat­vinnu­vegi á Íslandi, og gerir ný spá Íslands­banka ráð fyrir miklum áfram­hald­andi vexti í grein­inni.

Ný spá Íslands­banka um ferða­þjón­ust­una á Íslandi gerir ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekjur vegna hennar á þessu ári, verði 428 millj­arðar króna og sem hlut­deild af heild­ar­út­flutn­ingi verði hún 34 pró­sent. Á fimm árum hefur hlut­deildin í útflutn­ingi næstum tvö­fald­ast en hún var 18 pró­sent árið 2010. Þetta kemur fram í viða­mik­illi skýrslu bank­ans um ferða­þjón­ustu og vægi hennar í atvinnu­lífi þjóð­ar­innar.

Þetta sýnir glögg­lega hversu viða­mikil atvinnu­grein ferða­þjón­ustan er orðin á Íslandi. Árið 2009 kom til lands­ins 464 þús­und erlendir ferða­menn, en í fyrra voru þeir 1,3 millj­ónir. Gangi spá Íslands­banka eftir þá munu þeir verða rúm­lega 1,6 millj­ónir á þessu ári og verður fjölg­unin 29 pró­sent. Spáin gerir ráð fyrir að um 30 þús­und erlendir ferða­menn séu á land­inu á hverjum degi, að með­al­tali, allt árið.

Þriðja hvert nýtt starf sem hefur orðið til í íslenska hag­kerf­inu, á síð­ast­liðnum árum, má rekja til ferða­þjón­ustu.

Bretar og Bandaríkjamenn

Fleira má telja til, sem sýnir glögg­lega hversu umfangs­mikil ferða­þjón­ustan er hér á landi. Korta­velta erlendra ferða­manna í fyrra var 154,4 millj­arðar króna, sem eru um 13 millj­arðar í hverjum mán­uði. Aukn­ingin frá fyrra ári var 35,4 pró­sent, sem er hlut­falls­lega meira en sem nam fjölgun ferða­manna.

Breskum og Banda­rískum ferða­mönnum hefur fjölgað lang­sam­lega mest á und­an­förnum fimm árum. Sé miðað við árið 2010, þá hefur erlendum ferða­mönnum fjölgað um 800 þús­und, og eru Bretar og Banda­ríkja­menn tæp­lega helm­ing­ur­inn af þeim fjölga, eða sem nemur 372 þús­undum. Þegar horft er til heild­ar­fjölda ferða­manna á heims­vísu á ári, þá er Ísland lít­ill fiskur í stórri tjörn. Heild­ar­fjöldi ferða­manna á ári er tæp­lega 1,2 millj­arðar. Um það bil einn af hverjum þús­und ferða­mönnum í heim­inum ákveður að koma til Íslands.

Airbnb vex hratt

Í lok nóv­em­ber á árinu 2015 var fjöldi skráðra gisti­rýma á gisti­þjón­ustu­síð­unni Airbnb í Reykja­vík 2.681 en þau voru 1.188 í des­em­ber á árinu 2014 og hefur því skráðum gisti­rýmum fjölgað um 126% á tæpu ári, að því er segir í skýrsl­unni. Þessi mikla fjölgun bæt­ist við hraða upp­bygg­ingu á hót­elum, einkum í Reykja­vík. Þegar horft er yfir heildar í gistin­óttum, þá eru 42 pró­sent af öllum gistin­óttum ferða­manna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 58 pró­sent á lands­byggð­inni.

Fjölgun ferða­manna hefur hins vegar verið mikil í Reykja­vík og þörf á því að auka við gisti­rými aug­ljós. Hvort of hratt sé farið, verður að koma í ljós, en miðað við spár um fjölgun þá virð­ist vera full þörf fyrir mikla upp­bygg­ingu til að mæta eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu.

Krefjandi verkefni

Sé mið tekið af þeim upp­lýs­ingum sem fram koma í skýrslu Íslands­banka, og raunar einnig í fleiri spám sem birst hafa að und­an­förnu, þá er brýnt fyrir íslensk stjórn­völd að skapa skýra stefnu um inn­viða­upp­bygg­ingu í ferða­þjón­ust­unni. Umfang hennar er orðið það mikið, að fjár­fest­ingar, t.d. í þjóð­görðum og á fleiri álags­punktum, virð­ast ekki þola mikla bið, en hafið er mikið upp­bygg­ing­ar­tíma­bil á Kefla­vík­ur­flug­velli þar sem tug­millj­arða fram­kvæmdir eru hafnar, og er þeim ætlað að mæta stór­auknu álagi á vell­inum.

Stjórn­stöð ferð­mála, sem komið var á fót í októ­ber á síð­asta ári, vinnur að frek­ari stefnu­mótun og for­gangs­röðun verk­efna.

Í stjórn­stöð­inni eiga Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, Sigrún Magnús­dótt­ir, um­hverf­is­ráð­herra og Ólöf Nor­dal, inn­an­rík­is­ráð­herra, sæti fyr­ir hönd stjórn­valda.

Þá eru Grím­ur Sæ­mund­sen, for­maður Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar og einn stærsti eig­andi Bláa lóns­ins, Þórður Garðars­son, vara­for­maður, Helga Árna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri SAF, og Björgólf­ur Jó­hanns­son, for­stjóri Icelanda­ir Group, einnig með sæti á þessum vett­vangi.

Hörður Þór­halls­son, fyrr­um fram­kvæmda­stjóri Acta­vis, var ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar­inn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár