Skyggnst ofan í ruslakistu Seðlabanka Íslands - Eignir minnkað um 290 milljarða

Eigna­safn Seðla­banka Íslands hefur stundum verið nefnt rusla­kista Seðla­bank­ans. Þar hefur eignum, sem rekja má til falls fjár­mála­kerf­is­ins, verið safnað saman. Mikil end­ur­skipu­lagn­ing á eigna­safn­inu hefur átt sér stað.

Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) hefur á und­an­förnum árum minnkað efna­hag­inn umtals­vert með eigna­sölu, en sé miðað við stöðu mála hjá félag­inu eins og hún var um mitt ár í fyrra, þá átti félagið 200,8 millj­arða króna eignir.

Síðan þá hefur eigna­sala haldið áfram og minnkun efna­hags­ins sam­hliða, að því er fram kemur í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurnum Kjarnans um stöðu ESÍ og eigna­sam­setn­ingu þess. „Frá stofnun hefur eitt af meg­in­hlut­verkum ESÍ hefur verið að lýsa kröfum, fulln­usta veð og ná utan um og við­halda eigna­safn­inu. Und­an­farin ár hefur jafn­framt mark­visst verið unnið að því að draga saman efna­hag ESÍ. Að stórum hluta hefur það gerst með sölu eigna en stærsta ein­staka skrefið var sala á sér­tryggðum skulda­bréfum í eigu ESÍ til ÍLS síð­ast­liðið haust. Aðrar eignir sem seldar hafa verið á und­an­förnum árum voru eign­ar­hlutir í FIH og Sjóvá. Aðrar eigna­sölur hafa verið mun minni, þar með talið skráð skulda­bréf sem seld hafa verið á mark­aði og oft­ast nær í frekar litlum skömmtum til að hafa sem minnst áhrif á mark­að­inn. Frá stofnun félags­ins í upp­hafi árs 2010 hefur efna­hagur þess dreg­ist saman um 290 millj­arða króna að miðju ári 2015. Síðan þá hefur salan til ÍLS bæst við auk þess sem hluti fjár­mála­fyr­ir­tækja í slita­með­ferð sem ESÍ á kröfur á hafa lokið slita­með­ferð með nauða­samn­ingum eða gjald­þroti, og byrjað að greiða út til kröfu­hafa í kjöl­farið,“ segir í svari Seðla­banka Íslands.

Seðla­bank­inn von­ast til þess ESÍ verði lagt niður á þessu ári, og má þá segja að loka­punktur verði settur við umfangs­mikla eigna­um­sýslu Seðla­banka Íslands, sem rekja má til hruns fjár­mála­kerf­is­ins, og neyð­ar­laga­setn­ingar Alþingis, haustið 2008.

Hætt við sölu

Hætt hefur verið við sölu á öllum eignum Hildu, dótt­ur­fé­lags Eigna­safn Seðla­banka Íslands, þar sem ekk­ert ásætt­an­legt til­boð þótti ber­ast í eign­irnar, eins og fram kom á vef Kjarnans 27. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Fjórir fjár­festa­hópar gengu til við­ræðna um kaup á öllum eignum Hildu, dótt­ur­fé­lags Eigna­safns Seðla­banka Íslands (ESÍ). Hóparnir fjórir voru settir saman af fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum Arctica Finance, Virðingu, Kviku fjár­fest­ing­ar­banka (sam­ein­aður banki Straums og MP banka) og ALM Verð­bréfum, að því er greint var frá í DV 4. des­em­ber.

Hilda er hluti af stóru eigna­safni ESÍ, og á 364 fast­eignir sem bók­færðar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna.

Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns, sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins í fyrra og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekjur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins í fyrra.

Mest í skuldabréfum og langtímakröfum

Af um 200,8 millj­arða­heild­ar­eigna­safni, miðað við stöðu mála um mitt ár í fyrra, voru 106 millj­arðar í skulda­bréfum og lang­tíma­kröfum, eða ríf­lega helm­ingur af heild­ar­eignum. Kröfur á fjár­mála­fyr­ir­tæki voru metnar á 67,7 millj­arða króna, inn­stæður námu 9,6 millj­örðum og hluta­bréfa­eign var metin á 610 millj­ónir. Þá nam tekju­skattsinn­eign félags­ins 1,4 millj­arði, að því er fram kemur í svari Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.



Sér­stak­lega er tekið fram að minnkun efna­hags­ins hafi ekki ein­göngu farið fram með eigna­sölu, heldur hafi skuldir einnig verið greiddar upp. „Efna­hagur ESÍ hefur ekki ein­göngu dreg­ist saman vegna eigna­sölu. Hluti eigna félags­ins hafa verið skulda­bréf og lang­tíma­kröfur á starf­andi fyr­ir­tæki og af þeim hafa verið greiddar afborg­anir og ein­hverjum til­fellum verið greitt inn á þessar skuldir eða þær greiddar upp, ýmist með sam­komu­lagi eða sam­kvæmt skil­málum,“ segir í svar­inu.

Kjarninn óskaði eftir því í fyr­ir­spurnum til Seðla­bank­ans, að fá nákvæm­lega útli­stað hvaða eignir ESÍ ætti, væri með til sölu og hefði selt, þar á meðal nákvæma útlistun á fast­eigna­safni sínu og eftir atvikum öðrum eignum. Þá var einnig óskað eftir upp­lýs­ingum um hvaða aðilar hefðu keypt eignir félags­ins þegar þær voru seldar. Upp­lýs­ing­arnar sem hér fylgja, voru þær sem Seðla­bank­inn veitti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár