Seðlabankinn vonast til þess að leggja niður ESÍ á næsta ári

Seðla­banki Íslands von­ast til þess að leggja niður Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) á árinu 2016. Bankinn segir ljóst að starf­semi ESÍ sé ekki til fram­búðar heldur sé um að ræða sér­stakt tíma­bundið skipu­lag vegna vörslu, úrvinnslu og stýr­ingar krafna og fulln­ustu­eigna sem Seðla­bank­inn sat uppi með í kjöl­far banka­hruns­ins. „Þegar kröfur hafa verið inn­heimtar og eignir seldar hefur félagið lokið hlut­verki sínu og verður slitið. Jafnvel er von­ast til þess að hægt verði að leggja niður ESÍ á kom­andi ári.“

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð sem yfir­stjórn Seðla­banka Íslands hefur tekið saman fyrir banka­ráð hans vegna bréfs sem umboðs­maður Alþingis sendi 2. októ­ber 2015 vegna athug­unar hans á með­ferð gjald­eyr­is­mála og umsýslu og með­ferð krafna og eigna sem félög í eigu bank­ans fara með. Umboðs­maður gagn­rýndi stofnun ESÍ í bréfi sem hann sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í októ­ber, vegna athug­unar sem hann hefur unnið á síð­ustu árum vegna atriða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands um ætluð brot á reglum um gjald­eyr­is­höft. Þar var fjallað sér­stak­lega um flutn­ing verk­efna Seðla­bank­ans á við umsýslu og sölu eigna til ESÍ.

Umboðs­maður sagði að bank­ann ekki hafa haft skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við umsýslu og sölu eigna til ESÍ. Yfir­stjórn Seðla­banka Íslands hafn­aði þess­ari gagn­rýni í ofan­greindri grein­ar­gerð, sem var birt í dag.

„Ruslakista" troðfull af hruneignum

ESÍ hefur leikið stórt hlut­verk í upp­gjöri Seðla­banka Íslands við banka­hrunið und­an­farin ár. Inn í félagið, og dótt­ur­fé­lag þess Hildu, hefur þeim fulln­ustu­eignum og upp­gjörs­samn­ingum sem Seðla­bank­inn hefur leyst til sín verið hrúgað. Á meðal þeirra eigna sem ESÍ heldur á eru allar kröfur Seðla­bank­ans á Glitni, Kaupþing og Lands­bank­ann. Félagið er því langstærsti inn­lendri kröfu­hafi þeirra slita­búa, sem nú er stefnt að því að gera upp á næstu mán­uðum. Það er oft kallað "rusla­kista" Seðla­bank­ans í hálf­kær­ingi á meðal manna í við­skipta­líf­inu.

Í lok árs 2012 átti ESÍ bók­færðar eignir upp á 326 millj­arða króna. Stjórn­endur félags­ins hafa verið dug­legir við að selja eignir und­an­farin ár og um síð­ustu ára­mót voru eignir þess metnar á 209 millj­arða króna. Í ágúst aug­lýsti ESÍ dótt­ur­fé­lagið Hildu til sölu. Það félag á 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna. Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekjur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár