Verðhrun í Kína grefur undan mörkuðum um allan heim

Hluta­bréf hafa fallið mikið í verð á mörk­uðum í dag, í Asíu, Evrópu og í Banda­ríkj­unum. Slæmum hag­tölum í Kína er kennt um.

Hluta­bréf hrundu í verð í Kína í dag, eða um sjö pró­sent, eftir að nýjar hag­tölur voru gerðar opin­berar sem þóttu sýna hæga­gang í Kína, miðað við vænt­ingar. Sér­stak­lega eru það hag­tölur úr bygg­ing­ar­iðn­aði og fram­leiðslu, sem ekki stóðu undir vænt­ingum, sam­kvæmt umfjöllun Wall Street Journal. 

Þessi tíð­indi frá Kína eru sögð hafa hrint af stað mik­illi lækk­un­ar­hr­inu á mörk­uðum í dag, en hin útflutn­ings­drifna DAX 40 vísi­tala í Þýska­landi lækk­aði um 3,8 pró­sent við opnun, en þegar líða tók á dag­inn lækk­aði verðið um 4,44 pró­sent.

Það sama hefur verið uppi á ten­ingnum á öðrum mörk­uðum, þar sem miklar lækk­anir hafa sést. Þannig hefur Nasdaq vísi­talan í Banda­ríkj­unum lækkað um 2,72 pró­sent, og S&P 500 vísi­talan um 2,5 pró­sent.

Í við­tali við Wall Street Journal segir Rob Bern­stone, fram­kvæmda­stjóri hjá Credit Suisse bank­anum í New York, að svo virð­ist sem þessi mikla nei­kvæðni á mörk­uðum hafi komið flestum í opna skjöldu. „Hvað sem þar var, sem miðl­arar voru að gera núna, í upp­hafi 2016, þá virð­ast þau veð­mál hafa farið út úm þúfur,“ sagði Bern­stone.

Eins og greint hefur verið frá í frétta­skýr­ingum á vef Kjarnans á und­an­förnum mán­uðum, þá hafa verið að byggj­ast upp miklar áhyggjur af gangi mála í Kína, hjá fjár­festum í Banda­ríkj­unum. Þeir treysta illa hag­tölum í Kína, og telja að staðan í kín­verska hag­kerf­inu sé verri en stjörn­völd þar í landi vilja við­ur­kenna, að því er fram hefur komið í könn­unum sem Wall Street Journal hefur gert meðal hag­fræð­inga og fjár­festa.

Þrátt fyrir að staðan í Kína, sem er annað stærsta hag­kerfi heims­ins á eftir Banda­ríkj­unum, sé slæm, þá gerir hag­vaxt­ar­spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins ráð fyrir því að hag­vöxtur í fyrra, hafi verið á milli sex og sjö pró­sent. 

Und­an­farin tæp­lega tutt­ugu ár hefur hag­vöxtur verið á bil­inu sjö til 10 pró­sent á ári að með­al­tali í Kína, og hag­kerfið þannig umbylst. Þetta fjöl­menn­asta ríki heims, með um 1,4 millj­arða íbúa­fjölda, hefur auk þess opn­ast veru­lega frá því sem áður var, fyrir erlendri fjár­fest­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár