Japan greiðir bætur og biðst afsökunar vegna kynlífsþrælkunar

Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, hefur beðist inni­legrar afsök­unar á kyn­lífs­þrælkun sem suður-kóreskar konur voru hnepptar í í seinni heim­styrj­öld­inni og segir Japan við­ur­kenna mikla ábyrgð í mál­inu. Jafn­framt mun Japan greiða bætur sem sam­svara rúmum millj­arði íslenskra króna vegna þrælk­un­ar­innar. Stjórn­völd í Suður-Kóreu munu útdeila bót­unum úr sjóði.

Sam­komu­lag um þetta hefur náðst á milli Japans og Suður-Kóreu eftir ára­tuga umræður. Málið hefur lengi verið eitt helsta deilu­mál ríkj­anna tveggja en til­kynnt var um nið­ur­stöð­una eftir fund utan­rík­is­ráð­herra í Seúl í dag.

Allt að 200 þús­und konur voru neyddar í kyn­lífs­þrælkun við jap­anska her­menn í seinni heim­styrj­öld­inni, og tugir þús­unda þeirra voru kóreskar. Aðrar konur komu frá Kína, Fil­ipps­eyjum, Indónesíu og Taívan. Aðeins 46 konur frá Suður-Kóreu, sem neyddar voru í kyn­lífs­þrælkun, eru enn á lífi. 

Japanir hafa haldið því fram að málið hafi verið til lykta leitt með sam­komu­lagi árið 1965, þar sem diplómat­ískum tengslum ríkj­anna var komið á og Japan veitti Suður-Kóreu efna­hags­að­stoð og lán. Japanir báð­ust afsök­unar á mál­inu í yfir­lýs­ingu þáver­andi stjórn­valda árið 1993, en Suður-Kóreu­búar hafa verið tregir til að taka afsök­un­ar­beiðnum, m.a. vegna þess að ekki hefur verið talið að Japanir við­ur­kenni laga­lega ábyrgð sína og ekki gengið nógu langt í að biðj­ast afsök­unar.

Nú munu stjórn­völd í Suður-Kóreu telja mál­inu end­an­lega lokið, ef japönsk stjórn­völd standa við sitt. Hluti af sam­komu­lag­inu er að bæði ríki lofa að gagn­rýna ekki hvort annað á alþjóða­vett­vangi vegna máls­ins, og Suður-Kóreu­menn ætla að íhuga að fjar­lægja styttu sem reist var fyrir utan sendi­ráð Japans í Seúl fyrir fjórum árum, og táknar kon­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár