Sigmundur Davíð segir Kára fara með ómerkilegt bull og óheiðarlegar ásakanir

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir það megi vera öllum ljóst hversu rangt og bein­línis óheið­ar­legt það sé að saka þau stjórn­völd sem nú sitji, og hafi for­gangs­raða mest í þágu heil­brigð­is­mála, að vera vilj­andi að svelta heil­brigð­is­kerfið. Það að gungu­skapur stjórn­valda gagn­vart erlendum kröfu­höfum föllnu bank­anna hafi orðið til þess að ekki séu 150 millj­arðar króna til staðar til að setja í heil­brigð­is­kerfið sé ómerki­legt bull.

Þetta kemur fram í aðsendri grein for­sæt­is­ráð­herr­ans í Frétta­blað­inu í dag, þar sem hann svarar grein Kára Stef­áns­sonar, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, sem birt­ist á sama stað í gær. Kári gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina harka­lega fyrir fjársvelti gagn­vart heil­brigð­is­þjón­ustu og lin­kind gagn­vart kröfu­höfum föllnu bank­anna. Hann sagði lýðnum ljóst að rík­is­stjórnin myndi ekki sitja lengur en eitt kjör­tíma­bil og hét því að hann og nokkrir félagar hans myndu safna 100 þús­und und­ir­skriftum frá fólki sem myndi heita þess að kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­anna aldrei aftur ef fram­lög til Lands­spít­al­ans yrðu ekki aukin.

Segir Kára hugsanlega verðandi forsetaframbjóðanda

Í grein sinni, sem ber heitið „Toppari Íslands“, rekur for­sæt­is­ráð­herra sögu af ónafn­greindum manni sem hann segir að hafi verið svo­kall­aður „topp­ari“, og raunar „mesti topp­ari Íslands“. „Enginn var betri í við­skiptum en hann en samt var ekki til meiri mann­vinur, því hann mátti að eigin sögn ekk­ert aumt sjá. Það var líka sama hvaða sögur aðrir gestir sögðu, alltaf bætti hann um betur. Hann hafði gert merki­legri hluti, séð meira en aðrir og unnið stærri sigra. Hann taldi sig líka alltaf kunna betri brand­ara en hinir og sá því enga ástæðu til að leyfa öðrum að ljúka sínum skemmti­sögum áður en hann kom með aðra betri.

Í hvert sinn sem hann tók orðið var það auk þess gert af yfir­læti og gefið til kynna að allir aðrir en hann væru fábjánar. Þegar reynt var að leið­rétta eina eða tvær af fjöl­mörgum rang­færslum þessa sam­kvæmis­ljóns brást hann hinn versti við og gerði lítið úr þeim sem dirfð­ust að gera slíkar athuga­semdir.“

Sig­mundur Davíð segir að sér hafi nokkrum sinnum verið hugsað til topp­ar­ans vegna yfir­lýs­inga Kára Stef­áns­sonar, sem hann segir vera hugs­an­lega verð­andi for­seta­fram­bjóð­anda. „Sá bætir stöðugt í og skrifar nú enn eina grein­ina um hvað allir séu vit­lausir, stjórn­mála­menn og þjóðin, og standi illa að málum.

Það sem topp­arar þrá umfram allt annað er athygli og því er ég eflaust að veita jákvæða styrk­ingu með því að svara slíkum manni. Hann mun sjálf­sagt líta á það sem tæki­færi til að útskýra að nú hafi sann­ast enn betur en áður hversu illa gefnir og ill­vilj­aðir stjórn­mála­menn séu. Það er samt ekki hægt að láta það óátalið þegar maður sem tal­inn er gáf­aður á sumum sviðum heldur fram hreinum ósann­indum og nýtir um leið veik­indi fólks til sjálfs­upp­hafn­ingar.“
For­sæt­is­ráð­herr­ann segir að gangstætt því sem nú sé haldið fram í nýj­ustu grein Kára, sem hann nefnir reyndar aldrei með nafni í grein­inni, ríki „ágæt sam­staða um það bæði meðal almenn­ings og stjórn­mála­manna að for­gangs­raða í þágu heil­brigð­is­kerf­is­ins“. Það hafi núver­andi rík­is­stjórn gert í meira mæli en fyrri rík­is­stjórnir og að það sem af sé kjör­tíma­bili hafi fram­lög til Lands­spít­al­ans auk­ist um 30 pró­sent. „Framlög til spít­al­ans hafa aldrei verið meiri og það sama á við um heil­brigð­is­kerfið og vel­ferð­ar­kerfið í heild. Geti sér­fræð­ing­ur­inn toppað það með því að benda á annað vest­rænt ríki sem hefur aukið jafn­mikið við fram­lög til heil­brigð­is­mála á sama tíma­bili (eða nokkru öðru tíma­bili í seinni tíð) hvet ég hann til að benda á slík dæmi.“

Merkilegt að maður sem reki fyrirtæki fari svona frjálslega með tölur

Sig­mundur Davíð segir það mega vera öllum ljóst hversu „rangt og bein­línis óheið­ar­legt það er að saka þau stjórn­völd sem hafa for­gangs­raðað mest í þágu heil­brigð­is­mála um að vera vilj­andi að svelta heil­brigð­is­kerfið. En slík fram­ganga er líka skað­leg því að við þurfum þrátt fyrir allt að ná enn betri árangri á sviði heil­brigð­is­mála og við þurfum að vera í aðstöðu til að setja enn meira, og miklu meira, fjár­magn í mála­flokk­inn á kom­andi árum og ára­tugum.“

Stjórn­völd verði að geta reitt sig á ráð­gjöf þeirra sem best þekkja til um hvernig hægt sé að leysa úr þeim vanda sem er brýn­astur og fjár­festa á sem árang­urs­rík­astan hátt í heilsu og lífs­gæðum fólks. „Gal­gopa­háttur í bland við rang­færslur hjálpar ekki til við það og enn síður lausnir byggðar á ósann­indum.“

For­sæt­is­ráð­herra gerir sér­stakar athuga­semdir við það sem Kári, eða Topp­ar­inn eins og hann er kall­aður í grein­inni, telji gungu­skap stjórn­valda gagn­vart kröfu­höfum föllnu bank­anna og ástæðu þess að ekki séu til 150 millj­arðar króna til að skella í heil­brigð­is­kerfið á einu bretti. Sú full­yrð­ing að upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna og losun fjár­magns­hafta skili bara 300 millj­örðum króna í rík­is­sjóð en ekki 850, likt og boðað hafi verið, sé „eitt ómerki­leg­asta bull þeirra sem gremst að stjórn­völdum skuli hafa tek­ist það sem áður var sagt ómögu­legt við losun hafta og upp­gjör bank­anna.“

Því næst segir Sig­mundur Davíð að það sé merki­legt ef maður sem fari svo frjáls­lega með tölur getur rekið stórt fyr­ir­tæki, og að minnsta kosti merki­legt ef hann geti rekið það með hagn­aði. „Þótt losun hafta sé flókið mál vita flestir sem hafa gefið sér 5 mín­útur eða svo í að kynna sér málið að þetta er ósatt. Stöð­ug­leika­skattur myndi m.v. núver­andi gengi skila um 622 millj­örðum í fjár­fram­lögum, auk ann­arra ráð­staf­ana, en stöð­ug­leika­fram­lag skilar um 500-600 millj­örðum (og meiru ef með þarf) í formi pen­inga og eigna auk ann­arra ráð­staf­ana upp á nokkur hund­ruð millj­arða sem styrkja stöðu efna­hags­lífs­ins og rík­is­sjóðs. Sú leið tryggir að fram­lögin verða næg til að takast á við vand­ann, sem þeim er ætlað að leysa, sama hversu stór hann reyn­ist.“

Ekki hægt að eyða öllum peningunum

For­sæt­is­ráð­herra bendir á að ekki sé hægt að nota allt fjár­magnið sem til fellur í fram­kvæmdir eða upp­bygg­ingu inn­viða. „Slíkt myndi þýða að verið væri að nota fjár­magn sem er til þess ætlað að verja efna­hags­legan stöð­ug­leika, með því að greiða niður skuldir, í að kynda undir verð­bólgu og óstöð­ug­leika. Með því, hins vegar, að nýta fjár­magnið til að greiða niður skuldir og bæta afkomu rík­is­ins og sam­fé­lags­ins til allrar fram­tíðar verður hægt, ár frá ári, á sjálf­bæran hátt, að halda áfram að styrkja og efla heil­brigð­is­kerfið og aðrar grunn­stoðir sam­fé­lags­ins.“

Maður sem reki fyr­ir­tæki hljóta að gera sér grein fyrir því að ekki sé hægt að reka rík­is­sjóð enda­laust með tapi eða með því að taka bara meiri og meiri lán. „Það að eyða fullt af pen­ingum á einu bretti, ýta undir verð­bólgu og halda svo bara áfram að taka lán bitnar á þeim sem á eftir koma, þ.e. kyn­slóðum og þar með talið sjúk­lingum, fram­tíð­ar­innar.
En topp­arar láta stað­reyndir eða fram­tíð­ina ekki þvæl­ast mikið fyrir sér. Fyrir þá er aðal­at­riðið að vera maður líð­andi stundar, sá sem fangar athygl­ina og verður vin­sæll meðal trú­gjarnra um sinn. Aðrir geta séð um að fást við afleið­ing­arnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár