Kári Stefánsson hótar að safna 100 þúsund undirskriftum gegn ríkisstjórninni

„Það er orðið lýðum ljóst að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem nemur kjör­tíma­bil­inu. Ástæðan er marg­þætt og það á við hér eins og segir í Geir­mund­ar­sögu Helj­ar­skinns að: „það renna margir orsaka­lækir að einum ósi örlaga.“ Rýnum nú í þau spjöld í sögu rík­is­stjórn­ar­innar sem gera það að verkum að það er búið að skammta henni þá daga sem hún mun telja.“ Svona hefst aðsend grein eftir Kára Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sem birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun.

Kári segir að við það ástand sem er við lýði í heil­brigð­is­málum þjóð­ar­innar verði ekki lengur búið. Þess vegna vilji hann láta fjár­laga­nefnd Alþingis vita að ef hún breytir ekki fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2016 á þann veg að mun meira fari til Lands­spít­al­ans en stefnt er að „munum við nokkrir félagar safna 100.000 und­ir­skriftum undir plagg sem hvetur lands­menn til þess að kjósa aldrei aftur þá stjórn­mála­flokka sem standa að þess­ari rík­is­stjórn vegna þess kulda og afskipta­leysis sem hún sýnir sjúkum og meiddum í okkar sam­fé­lagi. Söfnunin verður létt verk og löð­ur­mann­legt. Þjóðinni ofbýður.“

Afturenda hinna loforðaglöðu

Í grein­inni setur Kári fram harða og ítar­lega gagn­rýni á fram­göngu rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart heil­brigð­is­kerf­inu og segir að hún hafi lofað því í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga að styðja betur við það. „Nú æxl­uð­ust mál þannig að aft­ur­endar hinna lof­orða­glöðu hafa vermt valda­stóla í tvö og hálft ár en heil­brigð­is­kerfið er í engu minna rusli en áður og það horfir ekki til bóta nema síður sé.“

Kári rifjar upp að í upp­kasti að fjár­mála­frum­varpi árs­ins 2016 sé gert ráð fyrir því að það muni kosta fjórum millj­örðum krónum meira á næsta ári að halda uppi sömu þjón­ustu og veitt var í ár. Frum­varpið geri hins vegar ekki einu sinni ráð fyrir að halda í horf­inu, hvað þá að gera betur við heil­brigð­is­kerfið. „Þetta er sama rík­is­stjórnin og seg­ist vilja reisa nýtt hús yfir Land­spít­al­ann fyrir hund­rað millj­arða króna og segir gjarnan, upp fyrir haus í sínum dæmi­gerða rugl­ingi, að hún vilji reisa nýjan Land­spít­ala þótt spít­al­inn sé miklu meira og allt annað en hús þótt hann þurfi svo sann­ar­lega á húsi að halda. Húsið er nefni­lega ekki bara lof­orð sem verður erfitt að efna, það er líka skjól sem rík­is­stjórnin felur sig á bak við þegar henni er bent á að það sé ýmis­legt sem vanti upp á Land­spít­ala.“

Í grein Kára segir að þegar rík­is­stjórn hafi lokkað að sér kjós­endur með því að lofa því að bæta heil­brigð­is­kerfið þá ætti hún að end­ur­reisa Land­spít­al­ann með því að sjá honum fyrir þeim tækjum sem nútíma lækn­is­fræði kallar á og því fag­fólki sem þarf til að hlúa að sjúkum og meiddum meðan rík­is­stjórnin safnar liði til þess að reisa nýtt hús. „Það eru nefni­lega margar leiðir aðrar en að reisa hús til þess að bæta heil­brigð­is­kerfið og spara með því þegar til langs tíma er horft.[...]Eftir alla þá umræðu sem hefur átt sér stað og þann ein­róma vilja sem fólkið í land­inu hefur tjáð að Land­spít­al­inn fái meira er sú rík­is­stjórn dauða­dæmd sem stendur bísperrt fyrir framan fólkið og segir Land­spít­al­inn, ekki meir, ekki meir. Þetta er sama rík­is­stjórnin og leggur til í upp­kasti að fjár­lögum að fjár­fram­lög til kirkj­unnar verði aukin. Þegar ég benti lækni nokkrum vini mínum á hvað það væri skringi­legt að þjóð sem ekki hefði efni á að sinna brýnum vanda­málum heil­brigð­is­kerf­is­ins yki útgjöld til einnar teg­undar ann­arslífs­trúar svar­aði hann að kannski staf­aði það af því að hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hafi raun­veru­legt inn­sæi inn í vanda­mál heil­brigð­is­kerf­is­ins en í stað þess að leysa þau ætli hann að sjá til þess að þeir sem lát­ist af þeirra völdum verði jarð­sungnir með stæl og komi ekki til með að skorta góðar jarð­ar­farir.Mér fannst þetta bara svona rétt mátu­lega fynd­inn fimmaura brand­ari en engu fárán­legri en efni máls­ins, sem er aukið fé til kirkj­unnar en raun­veru­lega minna til Lands­spít­al­ans.“

Vill taka meira úr þrotabúum bankanna

Að mati Kára er fjársvelti heil­brigð­is­kerf­is­ins svartur blettur á íslenskri menn­ingu. „Fjár­fest­ing okkar í heil­brigð­is­kerf­inu er langt undir OECD með­al­tali. Það er ekki bara rík­is­stjórnum um að kenna heldur allri þjóð­inni vegna þess að við kusum fólk til þess að stjórna land­inu sem ákvað að svona ætti þetta að vera. Þetta á ekki bara við um núver­andi rík­is­stjórn því ástandið var jafn­vel verra undir þeirri síð­ustu. Hvernig stendur á því að við sem þjóð sættum okkur við að hlúa svona illa að sjúkum og meiddum sam­borg­urum okkar? Við þeirri spurn­ingu veit ég ekk­ert annað svar en að það hlýtur að vera eitt­hvað mikið að höf­uð­skelja­inni­hald­inu okkar.“

Hann segir að það þyrfti um 150 millj­arða króna til að „hysja heil­brigð­is­kerfið upp á ásætt­an­legan stað“. Þá pen­inga vill Kári taka frá þrota­búum þeirra banka sem settu sam­fé­lagið á hlið­ina. „Fyrr á árinu gáfu Sig­mundur og Bjarni það í skyn að ríkið myndi sækja allt að 850 millj­arða króna í þrota­búin en þegar upp er staðið virð­ist það ætla að verða um 300 millj­arðar. Ekki hafa feng­ist hald­góðar skýr­ingar á því hvers vegna þeir sætta sig við svo skarðan hlut en eitt er víst að 500 millj­arð­arnir sem á milli ber hefðu gert gott betur en að laga íslenskt heil­brigð­is­kerfi. Það lítur helst út fyrir að nægju­semi flokks­for­ingj­anna tveggja eigi rætur sínar í því að þeir hafi ekki viljað taka þá áhættu að styggja aðra kröfu­hafa í þrota­búin með því að taka meira. Það er dap­ur­legt að sitja uppi með korn­unga leið­toga sem ættu aldur síns vegna að vera hungr­aðir, kraft­miklir og hug­rakkir en þora ekki að taka það sem við þurfum og eigum skilið. Það er eins og þeir geri sér ekki grein fyrir því að það er miklu meiri áhætta tekin með því sækja ekki nægi­legt fé í þá einu sjóði sem eru okkur aðgengi­legir til þess að bylta íslensku heil­brigð­is­kerfi inn í nútím­ann. En þeir eru sem sagt reiðu­bún­ari til þess að taka þá áhættu sem felst í því að láta þjóð­ina búa við stór­gallað heil­brigð­is­kerfi og úrelt. Og Sig­mundur og Bjarni standa hoknir í hnjánum fyrir framan kröfu­haf­ana sem eru full­trúar hins erlenda auð­valds, og eru hreyknir yfir því að þeir kvört­uðu ekki undan dílnum sem þeir fengu og virð­ast ekki gera sér grein fyrir því að það voru ekki bara kröfu­haf­arnir sem glöt­uðu allri virð­ingu fyrir þeim þegar bux­urnar þeirra fóru að blotna heldur hið alþjóð­lega sam­fé­lag allt og ekki síst íslensk þjóð.“

Botnlaus hroki og grimmd fjárlaganefndar

Kári gagn­rýnir einnig Vigdísi Hauks­dóttur, for­mann fjár­laga­nefndar, fyrir að hafa ásakað Pál Matth­í­as­son, for­stjóra Land­spít­al­ans, um að hafa beitt nefnd­ina and­legu ofbeldi þegar hann reyndi
að útskýra fyrir henni fjár­þörf spít­al­ans. „Þar gætti svo­lít­ils mis­skiln­ings af hennar hálfu því þótt það hafi brunnið á hör­undi nefnd­ar­manna að heyra lýst þeirri þörf sjúk­linga sem þeir ætl­uðu ekki að mæta þá er ekki um ofbeldi að ræða af Páls hálfu heldur lýs­ingu á raun­veru­leika. Það má hins vegar deila um það hvað væri við­eig­andi nafn á þann gjörn­ing nefnd­ar­innar sem fólst í því að dauf­heyr­ast við bar­áttu Páls fyrir því að spít­al­inn fengi í það minnsta að halda í horf­inu.

Í stað þess að skamm­ast sín ákvað for­mað­ur­inn að veit­ast að Páli og kalla hóf­stillta bar­áttu hans fyrir hags­munum þeirra sem minnst mega sín í íslensku sam­fé­lagi and­legt ofbeldi. Nefndin virð­ist gleyma því að Páll er ekki að tala um göt í gegnum fjöll eða sendi­ráð í Tókíó heldur sjúk­dóma fólks­ins í land­inu, sárs­auka, kvíða, ang­ist og líf og dauða og síðan sjúk­dóma, sárs­auka, kvíða, ang­ist og líf og dauða for­eldra og barna fólks­ins. Og nefndin dauf­heyr­ist við því af botn­lausum hroka og grimmd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár