Siv Friðleifsdóttir fékk 20 milljónir og Björgvin G. 4,6 fyrir ráðgjafastörf í ráðuneytum

Siv Frið­leifs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, fékk tæpar tutt­ugu millj­ónir króna frá félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu fyrir aðstoð vegna nor­ræns sam­starfs, for­mennsku Íslands í nor­rænu ráð­herra­nefnd­inni og vinnu í vel­ferð­ar­vakt­inni frá upp­hafi árs­ins 2014.

Þetta kemur fram í svari Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, á Alþingi. Katrín hefur spurt alla ráð­herr­anna um útgjöld þeirra vegna sér­fræði-, ráð­gjafar- og kynn­ing­ar­starfa.

Félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neytið keypti sam­tals þjón­ustu fyrir 129,5 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Stærsti hluti þeirrar þjón­ustu var veittur vegna ýmissa starfa tengdum fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála. Samtals keypti ráðu­neytið þjón­ustu fyrir 59,9 millj­ónir króna vegna þess verk­efnis frá níu aðilum. Dýrasta þjón­ustan var frá KPMG, sem aðstoð­aði við til­lögu- og frum­varps­gerð vegna fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála. Fyr­ir­tækið fékk 24,9 millj­ónir króna frá ráðu­neyt­inu fyrir aðstoð­ina. Analytica fékk síðan 20,9 millj­ónir króna fyrir ráð­gjöf vegna fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála.

Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra svar­aði líka fyr­ir­spurn­inni í dag. Ráðu­neyti hans hefur keypt þjón­ustu fyrir sam­tals 124,9 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar og núver­andi vara­þing­maður, fékk 4,6 millj­ónir króna frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu á tíma­bil­inu fyrir tvö verk­efni. Annars vegar 3,8 millj­ónir vegna OECD skýrslu, Country Background Report, og hins vegar 800 þús­und „vegna skil­grein­ingar á eft­ir­lits­hlut­verki mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra keypti þjón­ustu fyrir 78 millj­ónir króna á sama tíma­bili. Íslenska skipa­fé­lagið fékk hæstu upp­hæð­ina, 14,8 millj­ónir króna fyrir verk­efna­stjórn verk­efn­is­ins Betri heil­brigð­is­þjón­usta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár