Öruggast að vera á og ferðast til Íslands

Ísland er örugg­asta ríki heims­ins, sam­kvæmt alþjóð­lega frið­ar­stuðl­inum (e. Global Peace Index). Ísland hefur verið örugg­asta ríkið á hverju ári frá árinu 2007, þegar frið­ar­stuð­ull­inn var birtur í fyrsta sinn.

The Independent tók í gær saman list­ann yfir fimmtán örugg­ustu ríkin til þess að ferð­ast til, í til­efni af ferða­við­vör­unum Banda­ríkja­stjórnar, sem ráð­leggur Banda­ríkja­mönnum frá ferða­lögum um allan heim eftir hryðju­verkin í París.

Grafið hér að ofan byggir á grafi Independent, en alþjóð­legi frið­ar­stuð­ull­inn tekur meðal ann­ars inn í mynd­ina örygg­is­á­standið í rík­inu, her­væð­ingu og þátt­töku í átökum, bæði inn­an­lands og utan. Þá er fjöldi mann­drápa, aðgangur að vopnum, ofbeld­is­full mót­mæli og fleira tekið með í reikn­ing­inn.

Stuðull er gef­inn fyrir þessa þætti á skal­anum 1 til 5. Ísland fer upp í tvo í fjórum mála­flokkum sem eru mældir. Það er í stríðs­á­tökum erlendis, í inn­flutn­ingi á vopnum, í fjölda lög­reglu­manna og í skynjun á glæpum.

Í neðstu sæt­unum í frið­ar­stuðl­inum eru Sýrland, Írak og Afganistan, í þess­ari röð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár