Óveðurský yfir álinu - Betra að kasta 70 milljónum út um gluggann?

Álbrans­inn í heim­inum gengur nú í gegnum mikla erf­ið­leika. Álverð hefur lækkað mikið og stærstu álf­ram­leið­endur heims­ins eru að draga saman seglin, til að halda rekstr­inum í skefjum.

Hluta­bréf í banda­ríska álfyr­ir­tæk­inu Alcoa, móð­ur­fé­lag Fjarð­ar­áls, hafa lækkað um yfir 40 pró­sent á þessu ári miðað við sama tíma­bil í fyrra. Japanski bankaris­inn Nomura breytti stöðu þess­ara bréfa í sínu safni úr kaupa og í halda. Jafn­framt lækk­aði Nomura mat sitt á hlut­bréf­unum úr 14 doll­urum á hlut og niður í 8 doll­ara. Í leið­inni var stöðu hluta­bréfa í Century Alu­minium, móð­ur­fé­lags Norð­ur­áls, breytt á sama hátt og verð­matið á hlutum þess félags lækkað úr 12 doll­urum niður í 4 doll­ara á hlut.

Nomura telur að heims­mark­aðs­verð á áli hald­ist á sömu slóðum og það er í dag fram yfir árið 2017. Áltonnið kostar undir 1.500 doll­urum á málm­mark­að­inum (LME) í London þessa stund­ina. Það er rétt yfir jafn­vægisverð­inu (brea­keven) hjá best reknu álverum heims­ins en það er talið vera um 1.450 doll­arar á tonnið. Um 90 pró­sent af öllum álverum í Kína, stærsta álf­ram­leið­enda heims­ins, eru rekin með tapi í dag.

Nýlega birti Rík­is­út­varpið frétt um að sveit­ar­stjórn­ar­menn á Norð­ur­landi vildu fá 70 millj­óna króna styrk frá skatt­greið­endum til að und­ir­búa hugs­an­legt álver við Húnaflóa. Beiðni um þennan styrk var komið til fjár­laga­nefndar. Það mætti eig­in­lega segja að fjár­laga­nefnd gerði betur í að henda þessu fé út um glugg­ana á annarri hæð Alþingis heldur en senda það norður. Þá kæmi það alla­vega þeim til góða sem ættu leið fram­hjá alþing­is­hús­inu á því augna­bliki sem seðl­arnir streymdu niður í Kirkju­strætið.

Versnandi staða

Að und­ir­búa álvers­bygg­ingu í dag á Íslandi verður að telj­ast und­ar­legt eins og staðan er á álmörk­uðum heims­ins. Staða sem ekki er lík­legt að batni a.m.k. næstu tvö til þrjú árin. Sem dæmi um erf­ið­leik­ana má nefna að verð á áli var hið lægsta í sex ár á mark­að­inum í London (LME) fyrir viku síðan. Hér heima sjáum við að álverið í Straums­vík er í kröggum, og það ekki bara vegna yfir­vof­andi verk­falls að sögn for­stjór­ans, álverið á Grund­ar­tanga er það eina sem heldur móð­ur­fé­lag­inu Century Alu­minium á floti (vegna mjög hag­stæðs orku­verðs) og Alcoa móð­ur­fé­lag Fjarð­ar­áls ætlar að loka þremur af fjórum álverum sínum í Banda­ríkj­unum.

Undarleg áform

Hugs­an­legt álver við Húnaflóa mun verða kín­versk fram­kvæmd. Senni­legt er, miðað við fyr­ir­liggj­andi áform um stærð þess, að það verður rekið með miklu tapi í upp­hafi nema það fái ork­una svo gott sem gef­ins. Áform Kínverja eru svo enn und­ar­legri þegar horft er til þess að í dag eru um 90 pró­sent allra álvera í Kína rekin með tapi að því er kemur fram í úttekt ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins AZ China. Í sumum til­viklum er tapið falið með gíf­ur­legum nið­ur­greiðslum stjórn­valda á orku­verð­inu til þeirra. Samt sem áður hefur álf­ram­leiðsla Kínverja auk­ist um 620.000 tonn í ár miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þetta er sama magn og nemur árs­fram­leiðslu þeirra þriggja álvera sem Century Alu­minium rekur í Banda­ríkj­unum. Raunar ætlar Century að draga veru­lega úr álf­ram­leiðslu sinni í Banda­ríkj­unum á næsta ári eins og Alcoa. Talið er að aðeins átta álver verði starf­andi þar í landi eftir ára­mótin.

Þrýsta á stjórnvöld

Í frétt á Reuters í síð­ustu viku kom fram að bæði Alcoa og Century Alu­minium beita banda­rísk stjórn­völd þrýst­ingi í dag til að fá þau til að draga úr inn­flutn­ingi á áli frá Kína. Fyrr­greind fyr­ir­tæki benda m.a. á að Kín­verjar nýti sér önnur lönd, eins og Víetnam og Mexíkó, til að kom­ast hjá inn­flutn­ings­gjöldum í Banda­ríkj­unum. Það er Kín­verjar sendi þangað „hálf­unnið“ ál sem síðan er selt til Banda­ríkj­anna sem full­unnið án þess að nokk­urt hafi gerst í raun annað en að umskipa þessu áli í höfnum fyrr­greindra landa.

Á móti þessum áformum stendur svo breiður hópur fyr­ir­tækja sem vill hafa mögu­leika á því áfram að kaupa ódýrt ál frá Kína. Þetta eru fyr­ir­tæki á borð dósa­verk­smiðjur/brugg­hús, bíla­fram­leið­endur og flug­véla­fram­leið­endur. Það er því erfitt að sjá að álfyr­ir­tækin hafi erindi sem erf­iði í þessu máli.

Vampírukolkrabbinn kemst í feitt

Álverð eftir hrun náði hæstu hæðum árið 2011 þegar það stóð í tæpum 2.700 doll­urum á tonnið hjá LME. Síðan hefur það sífellt lækkað og var síð­ast yfir 2.000 doll­urum í fyrra­sumar. Ári áður, það er sum­arið 2013, hafði The New York Times birt greinar um hvernig fjár­fest­ing­ar­bank­inn Goldman Sachs, stundum nefndur vam­p­íru­kol­krabb­inn, hafði hagn­ast gíf­ur­lega á kostnað almenn­ings með því að flytja stöðugt álblokkir milli vöru­húsa í sinni eigu á sömu lóð­inni. Eftir að stjórn­völd gripu í taumana á þess­ari „hringekju“ og stöðv­uðu hana hefur álverðið aldrei náð yfir 2.000 doll­ara markið.

Goldman Sachs, og fleiri bankar, hófu að kaupa iðn­að­ar­skemmur í Detroit í gíf­ur­legum mæli þegar álverðið var sem hæst árið 2011. Þær voru not­aðar til að geyma full­unnið ál áður en það var selt til not­enda. Eftir að „hringekjan“ fór í gang lengd­ist bið­tími not­enda eftir áli úr um sex vikum og upp í allt að 16 mán­uði með til­heyr­andi geymslu­kostn­aði og verð­hækk­unum sem runnu beint í vasa Goldman Sachs. Bankinn sagði taf­irnar vera vegna skorts á vöru­bíl­stjórum og lyft­urum að því er kom fram í New York Times. Blaðið komst að því að „hringekjan“ hefði kostað banda­ríska neyt­endur um 3 millj­arða doll­ara, eða nær 400 millj­arða kr. á ári, en um þetta var meðal ann­ars fjallað í leið­ara The New York Times. málið.

Kínversku kaupin á eyrinni

Kín­verska leiðin til að reyna að halda álverð­inu í horf­inu er nokkuð öðru­vísi en „til­færsl­unar“ hjá Goldman Sachs. Þar á bæ er beinn eða dul­inn rík­is­styrkur það sem heldur álverum á floti í núver­andi stöðu á álmark­að­inum. Í nýlegri umfjöllun á Reuters var greint frá einu dæmi af mörgum um hvernig kín­versk stjórn­völd styrkja álf­ram­leiðslu sína. Um er að ræða Liancheng álverið í Gansu hér­aði. Álverið sem fram­leiðir 550.000 tonn á ári er í eigu rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Chinalco. Þetta álver hefur tapað sam­tals 313 millj­ónum doll­ara eða hátt í 40 millj­örðum kr. frá árinu 2011 að því er fram kemur á vef­síðu Sambands málm­iðn­að­ar­ins í Kína. Rekst­ur­inn var svo erf­iður að aðstoð­ar­for­stjóri þess, Jiang Yinggang sagði fyrr í ár að það þyrfti að loka því. Til lokunnar kom þó aldrei þar sem hér­aðs­stjóri Gansi taldi svo mik­il­vægt að halda álver­inu opnu að hann lækk­aði orku­kostnað þess nægi­lega til að það gæti náð jafn­vægisverði í fram­leiðsl­unni miðað við álverðið í dag. Þetta er afgreiðsla sem álver á Íslandi geta aðeins látið sig dreyma um að ger­ist hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár