Sigmundur Davíð segir að Ísland hefði getað orðið gjaldþrota ef það hefði gengið í ESB

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Mynd: Birgir Þór

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að Ísland hefði getað orðið gjald­þrota ef landið hefði gengið í Evr­ópu­sam­bandið (ESB). Hann telur að Ísland hefði getað lent í sama lang­vinna efna­hag­hrun­inu Grikk­land eða í sama opin­bera skulda­klafa og Írland lenti í þegar írska ríkið tók yfir slæmar skuldir írskra einka­banka, ef aðild­ar­um­sókn Íslands hefði leitt til inn­göngu í sam­bandið. Þetta kemur fram í við­tali við Sigmund Davíð í vef­miðl­inum Politico.eu sem birt var í dag. Þar segir for­sæt­is­ráð­herr­ann einnig í raun ómögu­legt að Ísland muni ganga í Evr­ópu­sam­bandið í bráð.

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sótti um aðild að sam­band­inu árið 2009 en við­ræð­urnar voru settar á ís undir lok valda­tíma hennar. Núver­andi rík­is­stjórn hætti síðan við­ræð­unum alfarið og hefur lýst því skýrt yfir að hún hafi engan áhuga á inn­göngu. Óljóst er hins vegar hvort umsóknin hafi form­lega verið dregin til baka.

Sig­mundur Davíð segir við Politico að hann sé nokkuð viss um að efna­hags­bati Íslands hefði ekki orðið ef landið væri hluti af Evr­ópu­sam­band­inu. „Við hefðum meira að segja getað farið í hina átt­ina og orðið gjald­þrota ríki[...]Ef allar þessa skuldir hefðu verið í evrum, og við hefðum þurft að gera það sama og Írar og Grikkir, og taka ábyrgð á skuldum föllnu bank­anna okkar. Það hefði verið skelfi­legt fyrir okkur efna­hags­lega“. Þess í stað sé Ísland ein helsta vel­gengn­issaga eft­ir­hrunsár­anna í heim­inum.

Sig­mundur Davíð segir að helstu rök­semd­ar­færslan fyrir aðild­ar­um­sókn­inni, þegar hún var lögð fram árið 2009, hafi verið sú að Ísland þyrfti að ganga í Evr­ópu­sam­bandið vegna efna­hags­legra ástæðna. Aðild hafi alltaf verið sett um sem efna­hags­lega mik­il­væg spurn­ing. „Nú finnst fólki það vera búið að fá svar við henni. Íslenskur efna­haur hefur gengið mun betur en efna­hagur Evr­ópu­sam­bands­ins[...]Við höfum séð mik­inn bata á síð­ustu tveimur árum á meðan að Evr­ópu­sam­bandið stendur enn frammi fyrir vand­ræðum og áfram­hald­andi kreppu“.

Hann segir að strax þegar slaknað hafi á upp­haf­legu örvænt­ingu þjóð­ar­innar vegna efna­hags­vand­ræð­anna hafi blasað við að Ísland sé í góðum málum eitt og sér. Landið sé hluti af EES-svæð­inu og það sé eins nálægt Evr­ópu­sam­band­inu og Ísland vilji vera. „Ég held að það sé mjög ólík­legt, og raunar ómögu­legt, að Ísland mun ganga í sam­bandið í bráð,“ segir Sig­mundur Davíð við Politico.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár