Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 21,7 prósent - Píratar enn með langmest fylgi

Píratar mæl­ast með lang­mest fylgi allra stjórn­mála­flokka, en alls segj­ast 34,2 pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa þá í nýrri könnun MMR. Þetta er tíunda könn­unin í röð hjá fyr­ir­tæk­inu þar sem Píratar mæl­ast stærsti flokkur lands­ins. Fylg­is­breyt­ingar hjá flokknum í síð­ustu þremur könn­unum eru innan vik­marka.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar 3,6 pró­sentu­stigum á milli kann­anna og mælist nú með 21,7 pró­sent fylgi. Það er með því lægsta sem flokk­ur­inn hefur mælst með á þessu kjör­tíma­bili, en lands­fundur hans fer fram um kom­andi helgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 23,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hinn rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn, mælist með 10,4 pró­sent fylgi. Hann mæld­ist með 11,8 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun MMR sem var birt í 24. sept­em­ber. Flokk­ur­inn er langt frá kjör­fylgi sínu, en hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum vorið 2013 og var þá ótví­ræður sig­ur­veg­ari þeirra kosn­inga.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist ein­ungis 31,4 pró­sent nú þegar kjör­tíma­bilið er rúm­lega hálfnað. Hann dalar lít­il­lega á milli kann­anna en stuðn­ing­ur­inn hefur mæst rétt rúm­lega 30 pró­sent frá því í vor.


Vinstri grænir bæta við sig


Vinstri grænir taka stökk upp í nýju könn­un­inni. Þeir mæl­ast nú með 11,8 pró­sent fylgi en voru með 8,3 pró­sent í lok sept­em­ber. Sam­fylk­ingin heldur áfram að mæl­ast með lít­inn stuðn­ing. Nú segj­ast 11,3 pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa flokk­inn, sem er svipað og í síð­asta könnun. Sam­fylk­ingin fékk 12,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum, og þótti flokk­ur­inn hafa beðið afhroð.

Björt fram­tíð virð­ist einnig eiga í vand­ræðum með að ná við­spyrnu þrátt fyrir að hafa skipt um áhöfn í brúnni, en Óttarr Proppé tók nýverið við sem for­maður flokks­ins af Guðmundi Stein­gríms­syni. Fylgi flokks­ins mælist nú 6,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár