Sameining Íslandsbanka og Landsbankans kemur til greina

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir það koma til álita að sam­eina Íslands­banka og Lands­banka, komi til þess að ríkið eign­ist Íslands­banka að fullu, eins og ný til­laga kröfu­hafa gerir ráð fyrir. Þetta er haft eftir Bjarna í Morg­un­blað­inu í dag. Hann segir þó að líta þurfi til ann­arra sjón­ar­miða sem meðal ann­ars teng­ist sam­keppni og sam­þjöppun á mark­aði.

Auk þess seg­ist Bjarni ekki hafa áhyggjur af því þótt rík­is­sjóður verði stór eig­andi að bönk­unum í ein­hvern tíma. Það ástand geti þó ekki varað til lang­frama.

Lands­bank­inn er stærsti banki lands­ins og nema eignir hans alls nærri 1.200 millj­örðum króna. Eignir Íslands­banka nema um 976 millj­örðum króna, og er að svip­aðri stærð og Arion banki. Ef Íslands­banki endar í fangi rík­is­ins þá mun ríkið eiga Lands­bank­ann að 98 pró­sent hlut, Íslands­banka að öllu leyti og 13 pró­senta hlut í Arion banka, sem að öðru leyti er í eigu kröfu­hafa. Fram kemur í Frétta­blað­inu í dag fjár­mála­fyr­ir­tækið Arctica Finance kanni mögu­leg kaup inn­lendra fjár­festa á Arion banka og hafi rætt við líf­eyr­is­sjóði og aðila tengda Guð­björgu Matth­í­as­dóttur, útgerð­ar­konu í Vest­manna­eyjum.

Í gær var til­kynnt að íslenska ríkið væri að fara að eign­ast Íslands­banka en fyrir á ríkið Lands­bank­ann. Var þetta nið­ur­staða funda sem ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitnis, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna.

Glitnir hafði þegar lagt fram til­boð um stöðu­leika­fram­lag, þar sem gert var ráð fyrir að bank­inn yrði seldur, en skila­boðum var komið á fram­færi við stærstu kröfu­hafa Glitnis fyrir nokkrum vikum að fyrra til­boð þeirra full­nægði ekki stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda. Það var Seðla­banki Íslands, sem hefur það hlut­verk að meta hvort slit búa föllnu bank­anna hafi nei­kvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð Íslands, sem kom skila­boð­unum á fram­færi. Þessi sam­skipti áttu sér stað áður en fund­ar­höld stærstu kröfu­hafa Glitnis og fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta hófust á ný 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár