Illugi: Mistök að svara ekki fjölmiðlum

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að það hafi verið mis­tök að svara ekki spurn­ingum fjöl­miðla um tengsl sín við fyr­ir­tækið Orku Energy. Hann taldi að ekki væri um hags­muna­tengsl að ræða þegar hann seldi hús sitt til Hauks Harð­ar­sonar, stjórn­ar­for­manns Orku Energy og vinar, en Illugi vann hjá fyr­ir­tæk­inu þegar hann var utan þings. Þetta segir Illugi í föstu­dags­við­tal­inu í Frétta­blað­inu í dag.

„Í upp­hafi þessa máls leit­að­ist ég við að svara þeim spurn­ingum sem var beint til mín. Ég skal játa það að fár­viðrið varð svo mikið að það var eig­in­lega alveg sama hverju ég svar­aði – sömu spurn­ing­arnar komu upp aftur, urðu þá til­efni nýrra frétta og nýrra fyr­ir­sagna. Mér leið þannig þegar mestur hama­gang­ur­inn var að það hefði nákvæm­lega ekk­ert upp á sig að segja nokkuð. Ég taldi mig hafa sagt frá því sem skipti máli. Ég skal við­ur­kenna það að það voru mis­tök af minni hálfu. Ég hugs­aði, eins og ég hef lýst, að ég hefði jú selt hús­næðið, fengið greiðslu fyrir það og látið hús­næðið af hendi og það væri ekk­ert óeðli­legt við það. Ég taldi að það væri ekki um nein slík hags­muna­tengsl að ræða að ég þyrfti að kynna þau sér­stak­lega. Ég horfði til þeirra reglna sem þingið setti og það sem ég var að nefna hér áðan, Grecor-nefndin og svo fram­vegis, en þetta voru mis­tök,“ segir Illugi. Hann seg­ist vera mjög ósáttur við sjálfan sig vegna máls­ins.

Í við­tal­inu segir Illugi ekk­ert í mál­inu kalla á afsögn hans sem ráð­herra eða þing­maður og seg­ist ekki eiga von á öðru en að haldi áfram í stjórn­málum. Um gagn­rýni Páls Magn­ú­sonar, fyrrum útvarps­stjóra, segir Illugi að heift sé í orðum Páls.

„Mér finnst Páll Magn­ús­son ekki gæta mik­illar sann­girni í þessu sem hann er að tala um, fjár­hags­stuðn­ingi sem síðan hafi verið end­ur­gold­inn í póli­tískum stuðn­ingi. Hið rétta í mál­inu er og hefur komið fram ítrekað, að, já, ég seldi íbúð okkar hjóna, fyrir því er þing­lýst afsal. Við létum af hendi okkar eign. Ástæðan er sú að við vorum með tölu­verðar skuldir á þess­ari íbúð. Við lentum eins og margir í vanda eftir hrunið. Við höfðum keypt okkar fyrstu eign fyrir hrun og stóðum í erf­iðum málum hvað það varð­aði. Svo bætt­ist við atvinnu­rekstur sem við höfum verið í innan fjöl­skyld­unnar þar sem féllu á okkur ábyrgðir. Þar voru engar risa­tölur á ferð­inni, en það gerði okkur þetta ekki auð­veld­ara. Eins kom þarna tíma­bil þar sem voru ekki miklar tekjur. Staðan var þannig að mér fannst betra að selja íbúð­ina og grynnka þá á skuld­unum og í stað­inn leigðum við íbúð­ina. Það að líta á sölu íbúð­ar­innar sem ein­hvers konar fjár­fram­lag eða pen­inga­gjöf, það bara stríðir gegn allri almennri skyn­semi og síðan hitt að ég hafi ein­hvern veg­inn veitt þessu fyr­ir­tæki óeðli­lega póli­tíska fyr­ir­greiðslu,“ segir Illugi í við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár