Stjórn Símans hf. hefur ákveðið að óska eftir því við Nasdaq Iceland að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði. Síminn væntir þess að viðskipti geti hafist 15. október næstkomandi, að því er segir í tilkynningu frá Símanum og Arion banka.
Arion banki býður 18-21% til sölu í almennu útboði
Áður en kemur að skráningu Símans mun fara fram almennt útboð á hlutabréfum í félaginu dagana 5. til 7. október þar sem Arion banki hf. býður til sölu 18 til 21 prósent eignarhlut í félaginu. „Miðað við lágmarksverð útboðsins nemur heildarstærð þess 4,7 til 5,5 milljörðum króna og svarar það til um 26 milljarða króna markaðsvirðis alls hlutafjár í Símanum,“ segir í tilkynningunni.
Tvær tilboðsbækur verða í boði fyrir fjárfesta. Í tilboðsbók A verður fjárfestum boðið að skrá sig fyrir kaupum að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 2,7 til 3,1 króna á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs, að því er segir í tilkynningunni. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónum króna. „Þar verður lágmarksverð 2,7 krónur á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint af seljanda en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi í tilboðsbók A,“ segir í tilkynningunni.
Orri Hauksson, forstjóri Símans, fagnar áfanganum og segir Símann vera í góðri stöðu til að stíga þetta skref „Síminn er með traustar rætur í íslensku samfélagi og sterka stöðu á þeim mörkuðum sem fyrirtækið starfar á. Skráning félagsins í kauphöll er mikilvægt skref fyrir félagið, starfsfólk og hluthafa. Við teljum að félagið sé vel í stakk búið til skráningar og undirbúið fyrir þær áskoranir og aðhald sem skráningu fylgir.”
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir að skráning Símans sé í samræmi við þá stefnu bankans að stuðla að skráningu félaga á markað og koma þannig beint að uppbyggingu hlutabréfamarkaðarins, en hann hrundi nær alveg til grunn þegar bankarnir féllu, haustið 2008. „Arion banki hefur lagt ríka áherslu á uppbyggingu hlutabréfamarkaðarins hér á landi með því að stuðla að skráningu nýrra félaga í kauphöllina. Það er því ánægjulegt að á fjórum árum hefur Arion banki haft umsjón með skráningu sjö félaga. Síminn er þriðja félagið sem við fleytum á markað í ár með almennu útboði í aðdraganda skráningar. Það hefur verið ánægjulegt að vinna með Símanum að undirbúningi þessara tímamóta, því þarna er á ferðinni mikilvægt og öflugt félag á sviði fjarskipta og tækni, með mikla sögu og sterkt vörumerki. Síminn verður góð viðbót við íslenska hlutabréfamarkaðinn.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir