Átta þingmenn vilja aðskilja starfsemi viðskiptabanka og fjárfestingarbanka

Átta stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn, úr röðum Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar og Pírata, hafa lagt fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um aðskilnað starf­semi fjár­fest­ing­ar­banka og við­skipta­banka. Flutn­ings­maður til­lög­unnar er Ögmundur Jónasson en fram kemur í grein­ar­gerð hennar að málið hefur, í einni mynd eða annarri, áður verið flutt í sjö skipti.

Þing­menn­irnir sem flytja til­lög­una á þessu þingi eru auk Ögmundar þau Helgi Hjörvar, Birgitta Jóns­dóttir, Óttarr Proppé,
Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir. Tillagan gengur út á að samið verði og lagt fyrir Alþingi laga­frum­varp sem tryggi aðskilnað starf­semi við­skipta­banka og fjár­fest­ing­ar­banka.

„Banka­starf­semin sem hér um ræðir, ann­ars vegar rekstur fjár­fest­ing­ar­banka og hins vegar starf­semi almennra við­skipta­banka, er gjör­ó­lík þannig að mikið álita­mál er hvort þessi rekstur geti átt far­sæla sam­leið í einu og sama fyr­ir­tæk­inu ef mat á því fer fram á for­sendum almanna­hags­muna en ekki sér­hags­muna þeirra sem eiga og starf­rækja fjár­mála­fyr­ir­tækin.

Almenn við­skipta­banka­starf­semi bygg­ist á inn- og útlánum og því sem kalla má hefð­bundna fjár­mála­þjón­ustu við ein­stak­linga og fyr­ir­tæki og nýtur sem slík sér­stakrar verndar hins opin­bera sem bak­tryggir þessa starf­semi að ákveðnu marki með inn­lána­vernd. Fjár­fest­ing­ar­bankar fást hins vegar við fjár­mögnun ýmiss konar fjár­fest­inga; við­skipti með verð­bréf, hluta­bréf, ráð­gjaf­ar­starf­semi og eigna­stýr­ingu og rekstur þeirra er að jafn­aði til muna áhættu­sækn­ari og áhættu­sam­ari en starf­semi hinna almennu við­skipta­banka,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Bent er á að hér­lendis hafi aðskiln­aður í banka­kerf­inu áður verið til athug­unar í við­skipta­ráðu­neyti og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, auk þess málið hefur verið tekið til umfjöll­unar á Alþingi. Aftur á móti hafi ávallt verið ákveðið að bíða átekta, til að mynda eftir að end­ur­skoðun á reglu­verki um fjár­mála­starfs­mei ljúki á evr­ópska efn­hags­svæð­inu.

„Flutn­ings­menn til­lög­unnar líta svo á að ekki megi drag­ast lengur að breyta lagaum­hverfi fjár­mála­fyr­ir­tækja hér á landi þannig að hefð­bundin við­skipta­banka­starf­semi og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi verði aðskilin til fulls. Mik­il­vægt sé að þegar verið er að móta leik­reglur á fjár­mála­mark­aði til fram­tíðar verði um leið tryggt að ekki verði aftur unnt að mis­nota inn­stæður spari­fjár­eig­enda í við­skipta­bönkum í áhættu­samar fjár­fest­ingar sömu banka. Að mati flutn­ings­manna er reynslan ólygn­ust að þessu leyti og nauð­syn­legt fyrir skatt­greið­endur, rík­is­sjóð og spari­fjár­eig­endur að tryggt verði með lögum að fram­vegis verði ekki tekin frá­leit áhætta með fé af inn­láns­reikn­ingum og að inn­stæður venju­legra við­skipta­manna bank­anna verði tryggðar og for­gangs­kröfur í þrotabú þeirra ef þeir verða gjald­þrota.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár