Dularfullt félag sendir greiðslukröfur í nafni flóttamannahjálpar

Fjöl­mörgum við­skipta­vinum við­skipta­bank­anna þriggja, Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans, hefur borist greiðslu­krafa frá Flótta­manna­hjálp Íslands, áhuga­manna­fé­lagi upp á 990 krónur. Kröf­urnar eru merktar sem „Félags­gjöld“ jafn­vel þó eng­inn sem hefur haft sam­band við Kjarnann hafi nokk­urn­tíma heyrt af félag­inu.

Flótta­manna­hjálp Íslands, áhuga­manna­fé­lag var stofnað í jan­úar 2014. Hvorki UNICEF né Rauði kross Íslands hafa nokkru sinni heyrt um þetta félag. Bók­halds­deild Rauða kross­ins hefur borist mörg sím­töl í dag þar sem spurt er hvort greiðslu­krafan sé á vegum Rauða kross­ins. Í kjöl­far þess að Kjarninn hafði sam­band birt­ust til­kynn­ingar á sam­fé­lags­miðlum Rauða kross­ins um að þessar kröfur beri að var­ast.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Neyt­enda­stofu ber fólki ekki skylda til að borga kröfur sem það hefur sann­ar­lega ekki skuld­bundið sig til að borga. Að öllum lík­indum sé hér um val­greiðslu­kröfu að ræða.

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir hefur ekki náðst í for­svars­menn Flótta­manna­hjálpar Íslands, áhuga­manna­fé­lags í dag.





Nokkuð hefur verið um fyr­ir­spurnir í dag vegna greiðslu­kröfu sem barst fjölda fólks í morgun frá "Flótta­manna­hjálp Í...

Posted by Rauði kross­inn on 18. sept­em­ber 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár