Segir innheimtu­fyrirtæki hagnast á skulda­vanda borgarbúa

3,7 prósent allra reikninga sem Reykja­víkurborg sendi fór í innheimtu. Skuldari greiðir allan kostnaðinn vegna innheimt­unnar, sem er mishár eftir upphæð skuldar.

Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins spurð­ist fyrir um inn­heimtu­þjón­ustu. Mynd: Kristinn Magnússon

Tæplega 50 þúsund reikningar borgarbúa hafa farið í innheimtu­ferli til Momentum frá byrjun árs 2018. Tæplega fjögur þúsund reikningar fóru í löginnheimtu hjá Gjald­heimtunni á tíma­bilinu, sem er skulda­ferlið sem tekur við þegar viðkomandi nær ekki að greiða í milli­innheimtu.

Þetta kemur fram í svari við fyrir­spurn Sönnu Magdalenu Mörtu­dóttur, borgar­fulltrúa Sósíalista­flokksins, sem birt var í borgar­ráði á fimmtudag. „Margir eru í skulda­stöðu því þeir eiga ekki pening til að greiða reikninga og hér er Reykja­víkurborg að leyfa innheimtu­fyrirtækjum að hagnast á skulda­vanda borgarbúa,“ segir hún.

Alls voru 1,3 milljónir reikninga gefnir út af Reykja­víkurborg á tíma­bilinu og því fóru 3,7 prósent allra reikninga í milli­innheimtu á tíma­bilinu. Momentum sendi tæplega 68 þúsund bréf á sama tímabili. Flest vörðuðu þau kröfur á bilinu 3.000 til 84.900 krónur. Eininga­verð bréfanna fer eftir því hversu há skuldin er.

Í svarinu kemur einnig fram að heildar­fjöldi gjald­færðra símtala hjá Momentum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár