Kröfuhafar Glitnis samþykkja að greiða yfir 200 milljarða króna stöðugleikaframlag

Meiri­hluti kröfu­hafa Glitnis sam­þykkti í dag að greiða stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs Íslands og upp­fylla auk þess önnur skil­yrði fyrir gerð nauða­samn­inga. Að sögn Stein­unnar Guð­bjarts­dóttur, for­manns slita­stjórnar Glitnis, nemur stöð­ug­leika­fram­lagið að minnsta kosti 200 millj­örðum króna. Hvort það verði enn hærra ráð­ist af utan­að­kom­andi atriðum sem skýr­ast þegar fram vindur. Greint er frá nið­ur­stöðu kröfu­hafa­fund­ar­ins á vef RÚV.

Á fund­inum í dag var jafn­framt ákveðið að stofna sér­stakan skað­leys­is­sjóðs en slita­stjórn fór fram á að slíkur sjóður yrði stofn­aður. Í sam­tali við RÚV segir Steinunn að hlut­verk sjóðs­ins sé að þeir aðilar sem stýrt hafa búinu, slita­stjórn og aðrir starfs­menn, verði ekki per­sónu­lega ábyrgir vegna þeirra ákvarð­ana sem hafa verið teknar undir slita­með­ferð­inni. Stærð sjóðs­ins nemur tíu millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár