Síminn hagnast um 1,3 milljarða þrátt fyrir samdrátt í sölu - Eigið fé nú 31,2 milljarðar

Siminn, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, hagn­að­ist um 1,3 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015. Tekjur félags­ins dróg­ust hins vegar saman um 4,4 pró­sent á tíma­bil­inu miðað við sama tíma­bil í fyrra. Eigið fé Símans er nú 31,2 millj­arðar króna og hefur auk­ist um 1,3 millj­arða króna frá ára­mótum. Vaxta­ber­andi skuldir eru 24,8 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 50,7 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna hálfs­árs­upp­gjörs Símans.

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, til­kynnti það á Kaup­hall­ar­dögum Arion banka 8. apríl síð­ast­lið­inn að Síminn yrði skráður á hluta­bréfa­markað í haust. Arion banki og Arctica Finance hafa unnið að und­ir­bún­ingi hluta­fjár­út­boðs vegna skrán­ing­ar­innar. Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Orra að vinna við und­ir­bún­ing skrán­ingar gangi vel og að gert sé ráð fyrir því að Síminn verði skráður á markað á fjórða árs­fjórð­ungi.

Síminn á og rekur fyr­ir­tæki sem starfa einkum á sviði fjar­skipta og upp­lýs­inga­tækni. Innan sam­stæð­unnar eru eft­ir­talin fyr­ir­tæki: Síminn, Míla, Sensa, Staki, On-Waves Radi­omiðun, Talenta og Sensa DK í Danmörku.

Sala dróst saman


Alls seldi Síminn vörur og þjón­ustu fyrir 14,6 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem er um 700 millj­ónum krónum minna en hann gerði á sama tíma­bili í fyrra. Ástæðan er fyrst og fremst sú að tekjur Símans í Danmörku voru að hluta til inni í tölum fyrra árs en það fyr­ir­tæki var selt á árinu 2014. Rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBITDA) var um fjórir millj­arðar króna, sem er mjög svipað og á fyrri hluta síð­asta árs.

Alls nema heild­ar­eignir Símans 61,5 millj­örðum króna og vaxta­ber­andi skuldir hans eru 24,8 millj­arðar króna, eða um 1,2 millj­örðum krónum lægri en þær voru um mitt ár 2014. Eigið fé e, líkt og áður sagði, 31,2 millj­arðar króna.

Keyptu fimm prósent í Símanum


Nokkrir stjórn­endur Símans og hópur ann­arra fjár­festa, meðal ann­ars erlendra, keyptu fyrir helgi fimm pró­sent hlut í félag­inu á 1.330 millj­ónir króna. Miðað við það verð er mark­aðsvirði Símans 26,6 millj­arðar króna. Hópinn leiðir hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan, sem er fyrrum yfir­maður hjá Morgan Stanley. Kan þekkir vel til Símans, en hann stýrði meðal ann­ars sölu­ferli hans árið 2005, þegar Síminn var einka­væddur, fyrir hönd Morgan Stanley.

Á meðal ann­arra sem keyptu er Orri Hauksson, for­stjóri Símans, sem keypti sam­tals 0,4 pró­sent hlut fyrir um 106 millj­ónir króna.

Þá vekur athygli að fyrrum for­stjóri eins helsta sam­keppn­is­að­ila Símans, Vodafone á Íslandi, er á meðal þeirra fjár­festa sem til­heyra hópnum. Sá heitir Ómar Svav­ars­son og stýrði Vodafone á Íslandi í fimm ár, eða þar til í maí 2014 þegar honum var sagt upp störfum. Ómar hafði þá starfað hjá Vodafone frá árinu 2005.

Eftir söl­una á Arion banki enn 33 pró­sent hlut í Símanum, sem stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins. Stefnt er að því að skrá hluta­bréf Símans í Kauphöll Íslands í haust og í aðdrag­anda þess áformar Arion banki að minnka enn frekar hlut sinn. Aðrir stórir eig­endur Símans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, þeirra stærstur er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna 13,23 pró­sent hlut.

Menn sem störfuðu hjá Morgan Stanley og Goldman Sachs


Fjár­festa­hóp­ur­inn sam­anstendur af fjár­festum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórn­endum Síma­sam­stæð­unnar. Á meðal þeirra er Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Aðrir úr stjórn­enda­hópnum sem kaupa eru þeir sem sitja fram­kvæmda­stjórn­ar­fundi Símans (fram­kvæmda­stjórar Símans eru Birna Ósk Ein­ars­dóttir, Magnús Ragn­ars­son, Eric Figueras og Óskar Hauksson), fram­kvæmda­stjóri Mílu (Jón Ríkharð Krist­jáns­son) og fram­kvæmda­stjóri Sensa (Val­gerður Hrund Skúla­dóttir).

Til við­bótar eru fimm erlendir ein­stak­lingar í fjár­fest­inga­hópnum. Þeir eru, auk Kan, þeir Joe Ravitch, Adam Samu­els­son, Troels Askerud og Kaj Juul-Pedersen. Hópurinn kemur úr ýmsum áttum en Ravitch var til að mynda í stjórn­enda­hópi Goldman Sachs í á annan ára­tug og Juul-Pedersen er fyrrum fram­kvæmda­stjóri hjá Ericsson.

Þá eru þrír íslenskir einka­fjár­festir líka með í hópnum. Á meðal þeirra er Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers, var einn eig­andi Haga og stofn­aði fyrr á þessu ári verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði með nokkrum fyrrum lyk­il­starfs­mönnum úr Straumi. Hinir íslensku fjár­fest­arnir eru Stefán Ákason, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og áður­nefndur Ómar Svav­ars­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár