Blikur á lofti í Noregi - Óttast að olíuverðið fari niður í 30 dali

Noregur gengur nú í gegnum efna­hags­legan titr­ing vegna breyt­inga í heims­bú­skapnum sem hafa mikil áhrif á gang mála í Noregi. Nær­tæk­ast er að nefna verð­fall á olíu sem hefur leitt til tölu­verðrar þreng­inga í olíu­geir­anum norska, einkum iðn­aði sem þjón­ustar olíu­fram­leiðslu og flutn­ing.

Samkvæmt fréttum norska við­skipta­fjöl­mið­ils­ins Dagens Nær­ingsliv ótt­ast fjár­festar í Noregi að olíu­verðið geti lækkað niður í 30 Banda­ríkja­dali á fatið á næsta ári en það er nú í kringum 50 dali. Fyrir ári síðan var það 110 Banda­ríkja­dalir og því hefur verð­sveiflan niður á við verið afar hröð, með slæmum afleið­ingum fyrir Noreg.

Mest hefur nið­ur­sveiflan verið á svæðum þar sem olíu­geir­inn er umsvifa­mestur, þar á meðal í Roga­landi þar sem Stavan­ger er stærsta þjón­ustu­svæðið. Þar hefur orðið tölu­verður sam­dráttur að und­an­förnu og fast­eigna­verð hefur lækkað meira þar en ann­ars staðar í land­inu, þar sem verð hefur haldið áfram að hækka. Raunverð fast­eigna hækk­aði um 6,8 pró­sent í fyrra yfir landið allt.

Það sem fjár­festar ótt­ast nú mest er að nið­ur­sveifla sé framundan í Kína sem leiði til minnk­andi eft­ir­spurnar eftir nær öllum hrá­vörum, þar sem Kína hefur dregið vagn­inn í hag­vexti heims­bú­skap­ar­ins und­an­farin ár. Noregur er mikið hrá­vöru­land og á mikið undir útflutn­ingi á olíu, áli, raf­orku og mat­vælum, ekki síst sjáv­ar­af­urðum. Mikil nið­ur­sveifla í Kína gæti leitt til vanda­mála í Noregi þess vegna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár