Lee Buchheit: Efnahagsleg endurreisn Íslands verður kennd við Harvard í framtíðinni

Íslend­ingar von­ast lík­lega til þess að þurfa aldrei aftur að sjá Lee Buchheit. Hann hefur tví­vegis verið kall­aður til þjón­ustu, í bæði skiptin til að hjálpa við lausn á risa­stórum efna­hags­legum vanda­málum sem gætu haft mjög alvar­legar afleið­ingar fyrir íslenska þjóð ef illa tæk­ist til við lausn þeirra. Í fyrra skiptið leiddi hann við­ræður sem leiddu til þriðju Icesave-samn­ing­anna, sem síðar voru felldir í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Síðustu mán­uði hefur hann verið lyk­il­maður í því að finna lausn á því risa­stóra vanda­máli sem erlend krónu­eign slita­búa fall­inna banka og ýmissa ann­arra fjár­festa, og fjár­magns­höft til að halda þeim krónum inni, er fyrir íslenska hag­kerfið.

Lausn þess vanda­máls var opin­beruð á mánu­dag­inn. Stærstu kröfu­hafar Glitnis, Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans hafa sam­þykkt að gefa eftir mörg hund­ruð millj­arða króna gegn því að fá að fá að klára slit á búum sínum og losa um eignir sínar.

Lítið land með risastórt vandamál

Buchheit var ráð­inn ráð­gjafi fram­kvæmda­hóps um losun hafta í júlí 2014. Sá hópur heyrði undir stýrinefnd sem í sátu meðal ann­ars Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og full­trúar úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Buchheit segir að þegar hann kom að mál­inu hafi staðið til að leysa það á árinu 2014. „Það sem þurfti að gera strax var að átta sig á umfangi vand­ans. Hann var mun stærri en bara slitabú bank­anna þriggja. Það þurfti lika að greina aflandskrón­urnar og mögu­legt útflæði inn­lendra aðila við losun hafta.

Fram­kvæmda­hópur um losun hafta hafði unnið þorra þeirrar grein­ingar þegar ég kom að þessu. Erfiði hluti vanda­máls­ins var, eins og oft vill verða, lausnin á því. Við eyddum því fyrstu vik­unum í að skoða mögu­legar leiðir til að takast á við vand­ann. Það eru tak­mörkuð for­dæmi fyrir svona stöðu í heims­sög­unni.

Vanda­málið á Íslandi var risa­stórt. Hag­kerfið var lítið, fjár­magns­höft höfðu verið til staðar í sex ár og um 70 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu var fast á bak við þau höft. Og íslenska efna­hags­hrunið var auð­vitað eitt það versta sem nokkru sinni hefur átt sér stað í heims­sög­unni. Sam­an­lagt gjald­þrot föllnu bank­anna var eitt stærsta gjald­þrot sem átt hefur sér stað.“

[caption id="attachment_31307" align="alignnone" width="1024"] Lee Buchheit er bjart­sýnn á að þeir kröfu­hafar sem hafa ekki tekið þátt í við­ræð­unum und­an­farna mán­uði muni spila með og sam­þykkja nauða­samn­ings­til­lögur í haust.[/caption]

Viðræður við kröfuhafa hófust í mars

Á fyrri hluta árs­ins 2015, nánar til­tekið í lok febr­úar og í byrjun mars, fór að kom­ast tölu­verður gangur á málið. Búið var að vinna grein­ingar á vand­anum og hvað þyrfti til svo hægt væri að losa höft. Ljóst var að kröfu­hafar slita­búa föllnu bank­anna myndu þurfa að gefa tölu­vert eftir af eignum sínum, sem raunar hafði blasað við í umtals­verðan tíma. Allt annað myndi ógna íslenskum greiðslu­jöfn­uði þannig að íslenskt sam­fé­lag myndi bíða mik­inn skaða af.

Buchheit segir að á þessum tíma hafi verið ákveðið að velja hóp kröfu­hafa sem voru álitnir leið­andi, þrjá til fjóra stærstu í hverju slita­búi fyrir sig, til að taka þátt í við­ræðum um lausn á vand­anum. Auk þeirra tóku helstu fjár­mála- og lög­fræði­legu ráð­gjafar kröfu­haf­anna þátt í fund­unum. „Á þessum tíma, í lok febr­úar og byrjun mars, ákvað stýrinefndin að nú væri rétti tím­inn til að hefja form­legt sam­ráðs­ferli með nokkrum leið­andi kröfu­höfum í hverjum banka fyrir sig. Við ákváðum að við þyrftum að tala við full­trúa kröfu­hafa í þessum þremur slita­búum. Vanda­málið við það er að kröfur á slita­búin ganga kaupum og sölum á mark­aði. Við gátum því ekki látið hluta kröfu­haf­ana fá upp­lýs­ingar sem aðrir voru ekki með nema að þeir væru tak­mark­aðir á ein­hvern hátt.

[quote font="0" align="right"]Kröfu­haf­arnir sem tóku þátt í við­ræð­unum voru því beðnir um að skrifa undir trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar og beðnir um að taka ekki þátt í við­skiptum með kröfur á slita­búin á meðan að við­ræð­urnar áttu sér stað og þangað til að upp­lýs­ing­arnar sem þeir fengu á meðan væru orðnar opin­berar.[/quote]

Kröfu­haf­arnir sem tóku þátt í við­ræð­unum voru því beðnir um að skrifa undir trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar og beðnir um að taka ekki þátt í við­skiptum með kröfur á slita­búin á meðan að við­ræð­urnar áttu sér stað og þangað til að upp­lýs­ing­arnar sem þeir fengu á meðan væru orðnar opin­berar.

Hlutverk fram­kvæmda­hóps­ins í þessum við­ræðum var að koma á fram­færi sýn stjórn­valda á vand­ann og hvernig fram­lag kröfu­hafa til lausnar á vand­anum þyrfti að verða. Það leiddi til þess að kröfu­haf­arnir lögðu fram ýmsar til­lögur um lausn sem fram­kvæmda­hóp­ur­inn bar síðan saman við þá kríteríu sem hann hafði sett sem skil­yrði að yrði að upp­fylla til að hann gæti sam­þykkt til­lögur þeirra.

Þeim nið­ur­stöðum var síðan komið aftur til kröfu­haf­anna sem gerðu slikt hið sama og þannig gekk þetta fram og til baka. Á end­anum þá lögðu kröfu­haf­arnir fram til­lögu sem fram­kvæmda­hóp­ur­inn taldi að hann gæti mælt með við stýrinefnd­ina að yrði sam­þykkt.“

Varð var við leka

Mikið hefur verið rætt um að upp­lýs­ingar um fram­gang hafta­los­un­ar­ferl­is­ins hafi lekið út til fjöl­miðla og ann­arra und­an­farna mán­uði. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði til að mynda að trún­að­ar­brestur eftir fund í sam­ráðs­nefnd um losun hafta í des­em­ber, sem í sitja full­trúar allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, hefði leitt til þess að upp­lýs­inga­gjöf hafi verið breytt þannig að flæði upp­lýs­inga var tak­markað. Þá hefur fram­kvæmda­hópur um losun hafta legið undir ámæli víða, meðal ann­ars á meðal þing­manna og innan fjár­mála­geirans, fyrir að leka upp­lýs­ingum um fram­gang áætl­un­ar­innar og helsta inn­tak hennar, til val­inna fjöl­miðla.

Buchheit kann­ast við umræð­una um leka úr starf­inu. „Lekar voru smá­vægi­legt vanda­mál í fyrstu skref­unum eftir að ég kom inn, en ekki alvar­legt vanda­mál. Það voru engir alvar­legir lekar eftir að trún­að­ar­yf­ir­lýs­ing­arnar voru und­ir­rit­aðar snemma á þessu ári. En fyrir þann tíma voru nokkrir lekar.“

Margra mánaða aðdragandi

Líkt og frægt er orðið voru til­lögur kröfu­haf­anna ekki lagðar fram fyrr en á sunnu­dag og mánu­dags­morgun. Þær síð­ustu eru sagðar hafa borist nokkrum mín­útum áður en kynn­ing­ar­fundur stjórn­valda á áætlun sinni um losun hafta hófst í Hörpu um hádeg­is­bil á mánu­dag.

Að sögn Buchheit var unnið að því alla nótt­ina að klára til­lög­urnar svo hægt yrði að leggja þær fram á þeim degi. Þær höfðu þó, líkt og áður sagði, átt sér margra mán­aða aðdrag­anda og voru nið­ur­staða mik­illa við­ræðna milli fram­kvæmda­hóps um losun hafta og stærstu kröfu­hafa slita­bú­anna um hvernig þau gætu mætt skil­yrðum íslenskra stjórn­valda þannig að hægt verði að slíta búunum með nauða­samn­ingi. „Loka­til­lög­urnar komu ein­ungis fram fyrir hádegi á mánu­dag, sama dag og kynn­ingin á hafta­á­ætl­un­inni fór fram. Fólk var vak­andi alla nótt­ina að klára þetta. Ferlið hafði þá staðið yfir frá því um miðjan mars. Frá þeim tíma hafa margar hug­myndir verið settar á flot um hvernig lausnin ætti að vera. Stjórn­völd unnu sam­hliða að mögu­legri álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts vegna þess að það var engin vissa um að sam­komu­lag myndi nást um til­lögu sem upp­fyllti þau skil­yrði sem sett höfðu verið fram.“

Samkomulag gefur stjórnvöldum margt sem skattur gerir ekki

Hann segir að sam­komu­lag um nið­ur­stöðu við kröfu­hafa, sem byggi á því að skil­yrði stjórn­valda séu sam­þykkt, færi stjórn­völdum margt sem stöð­ug­leika­skattur gæti ekki fært þeim. „Til dæmis það að slita­búin lána nýju bönk­unum sínum fé til að borga niður þau lán sem rík­is­sjóður og Seðla­banki hafa veitt þeim. Það er mikil búbót og færir mikið magn af gjald­eyri aftur til Seðla­bank­ans sem hann átti ekki von á árum saman.

Annað sem sam­eig­in­leg nið­ur­staða leiddi af sér er sú gjörð að slita­búin láta Seðla­bank­ann hafa krónu­kröfur sínar á inn­lenda aðila. Sumar krafn­anna eru á sveita­fé­lög og stór íslensk fyr­ir­tæki. Það að Seðla­bank­inn fái yfir­ráð yfir því gefur honum tæki­færi til að hafa áhrif á hvernig efna­hags­kerfið muni þró­ast á næstu árum. Svo gera til­lögur kröfu­haf­anna auð­vitað ráð fyrir þeim mögu­leika að nýju bank­arnir verði seldir fyrir gjald­eyri sem má nota til að greiða niður skuldir. Það hefði ekki verið hægt að fá slita­búin til að gera þessa hluti, neyða þau til að gera þetta, með ein­faldri skatt­lagn­ingu.

Það eru því mikil hagur fyrir stjórn­völd að leysa þetta mál með sam­komu­lagi frekar en með skatt­lagn­ingu.“

[caption id="attachment_31031" align="alignnone" width="640"] Áætlun stjórn­valda um losun hafta var kynnt í Hörpu á mánu­dag.[/caption]

Bjartsýnn á að tillögurnar verði samþykktar

Aðspurður hvort hann hafi skynjað vilja á meðal kröfu­hafa til að semja, og hvort það hafi ein­hvern tím­ann slegið í brýnu á milli þeirra á meðan á við­ræð­unum stóð, segir Buchheit að gera verði sér grein fyrir því að um rosa­lega stórar upp­hæðir sé að ræða og eðli­legt að upp komi aðstæður þar sem menn séu ósam­mála. „Ég er nokkuð viss um að margir kröfu­haf­anna eru ekk­ert sér­stak­lega ánægðir með að þurfa að gefa eftir svona mikla pen­inga. Að því sögðu þá hefur þetta gengið mjög fag­mann­lega fyrir sig. Ráð­gjaf­arnir sem slita­búin réðu, bæði á Íslandi og erlendis, voru mjög fag­mann­legir. Ég man ekki eftir að styggð­ar­yrði hafi komið frá þeim á meðan að þetta ferli stóð yfir. En það var auð­vitað munur á skoð­unum um hvað væri við­eig­andi að gera, eins og búast mátti við.“

Þótt að stærstu kröfu­hafar Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafi allir skilað til­lögum sem stýrinefnd um losun hafta hefur sam­þykkt að upp­fylli stöð­ug­leika­skil­yrðin sem þarf til að klára nauð­samn­inga slita­búa föllnu bank­anna er enn eftir tölu­verð vinna við að klára málið. Slita­stjórn­irnar þurfa að leggja til­lög­urnar fyrir kröfu­hafa­fund og þar þarf auk­inn meiri­hluti allra kröfu­hafa að sam­þykkja þær svo nauða­samn­ing­arnir klárist.

Buchheit er bjart­sýnn á að þeir kröfu­hafar sem hafa ekki tekið þátt í við­ræð­unum und­an­farna mán­uði muni spila með. „Það vinnur með Íslandi að þessir kröfu­hafar eru búnir að vera fastir á Íslandi mun lengur en þeir reikn­uðu nokkru sinni með.

Þeir voru því vilj­ugir til að ræða sam­komu­lag þegar það bauðst, meðal ann­ars vegna þess að þeir eru orðnir nokkuð þreyttir á ver­unni hérna. Þetta eru vog­unar- og fjár­fest­ing­ar­sjóðir sem vilja frelsa pen­ing­ana sína reglu­lega til að koma þeim í aðrar áhuga­verðar fjár­fest­ingar. Þeir voru hins vegar fastir hérna vegna haft­anna. Eftir sex ár þá voru þeir mjög mót­tæki­legir fyrir lausn þegar hún bauðst.

Ég er því bjart­sýnn á því að auk­inn meiri­hluti kröfu­hafa muni sam­þykkja til­lög­urnar sem munu verða lagðar fyrir þá af slita­stjórn­unum þegar þar að kemur. Ef auk­inn meiri­hluti sam­þykkir þetta þá ætti það að girða fyrir mál­sóknir í kjöl­far nauða­samn­inga.“

Enn á eftir að leysa aflandskrónu­vand­ann svo­kall­aða, sem verður gert í gegnum upp­boð þegar líður á árið. Buchheit telur að þau muni fara fram á svip­uðum tíma og slita­stjórn­irnar muni leggja til­lögur um nauða­samn­ing fyrir alla kröfu­hafa sína, vænt­an­lega í haust.

Gæti skilað 650 milljörðum króna

Ef kröfu­haf­arnir sam­þykkja þær til­lögur sem nú liggja fyrir telur Buchheit að stórt skref hafi verið stigið í átt að fullum efna­hags­bata Íslands eftir hrunið. „Ef áætl­unin gengur upp munu um 650 millj­arðar króna renna til rík­is­sjóðs. Ég veit ekki nákvæm­lega hver end­an­lega talan verður. Það fer eftir því á hvað nýju bank­arnir munu selj­ast, á hvað kröf­urnar gegn inn­lendu aðil­unum skila og svo fram­vegis. En mér finnst þetta lík­leg tala.

Þessi upp­hæð kemur auka­lega inn í rík­is­sjóð. Það er ekki gert ráð fyrir henni í fjár­lögum eða neinu slíku og hún er á pari við árleg útgjöld rík­is­ins. Hversu oft í sögu lands ger­ist slíkt?

[quote font="0" align="right"] En ég spái því að eftir tíu ár muni við­skipta­deild Harvard háskóla vera að vinna með dæmi (e. case-study) sem heiti „Ísland frá 2008 til 2015“. [/quote]

Þetta mun skapa spíral upp á við fyrir íslenskt hag­kerfi. Hann mun mynd­ast vegna þess að íslenska ríkið mun greiða um þriðj­ung skulda sinna, sem mun spara ykkur nokkra tugi millj­arða króna í vaxta­greiðslur. Það mun þýða að láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækin munu hækka láns­hæfi rík­is­ins, og í kjöl­farið íslenskra fyr­ir­tækja, sem mun draga úr lána­kostn­aði. Svo mun lyft­ing hafta gera það að verkum að fjár­fest­ing á Íslandi gæti auk­ist. Þetta vanda­mál, lausn á losun hafta, var síð­asta stóra vanda­málið sem hefti efna­hags­legan bata Íslands.“

Hann segir að Ísland hafa upp­lifað for­dæma­lausa tíma frá efna­hags­hruni og allar stóru ákvarð­an­irnar sem teknar hafa verið á síð­ustu tæpu sjö árum hafi reynst réttar. „Þetta hefur verið áreynslu­mik­ill tími fyrir Ísland. En ég spái því að eftir tíu ár muni við­skipta­deild Harvard háskóla vera að vinna með dæmi (e. case-study) sem heiti „Ísland frá 2008 til 2015“. Ég man ekki eftir neinu landi sem varð fyrir eins miklum og víð­tækum áhrifum vegna efna­hags­á­falls­ins en hefur jafnað sig á jafn ótrú­legan hátt á svona skömmum tíma. Ég er ekki að gera lítið úr þeim sárs­auka sem þetta ferli hefur valdið mörgum á Íslandi en end­ur­reisnin hefur verið hrað­ari en flestir töldu mögu­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár